Jonas Gahr Støre

Forsætisráðherra Noregs From Wikipedia, the free encyclopedia

Jonas Gahr Støre
Remove ads

Jonas Gahr Støre (fæddur 25. ágúst 1960) er norskur stjórnmálamaður og núverandi forsætisráðherra Noregs. Støre hefur verið leiðtogi norska Verkamannaflokksins frá árinu 2014 og var utanríkisráðherra Noregs í annarri ríkisstjórn Jens Stoltenbergs frá 2005 til 2012. Støre tók við embætti forsætisráðherra í október árið 2021 eftir þingkosningar mánuðinn áður.

Staðreyndir strax Forsætisráðherra Noregs, Þjóðhöfðingi ...
Remove ads

Æviágrip

Hann gekk í Berg-menntaskólann í Ósló og hlaut eftir það þjálfun hjá norska sjóhernum. Seinna nam hann stjórnmálafræði í París og hóf doktorsnám við London School of Economics en hætti fljótt við.

Þá lá leið hans fyrst til lagadeildar Harvard-háskóla þar sem hann kenndi í eitt skólaár. Frá 1986 til 1989 stundaði hann fræðastörf við Norwegian School of Management. Á árunum 1989 til 1995 starfaði hann sem ráðgjafi hjá forsætisráðuneyti Noregs. Því næst var hann sendiherra Noregs hjá frá 1995 til 1998. Á eftir fylgdi staða hjá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni undir Gro Harlem Brundtland. Því næst var hann ráðinn starfsmannastjóri Jens Stoltenbergs 2000-1.

Jonas vann 2002 til 2003 hjá norsku hugveitunni Econ Analyse og 2003 til 2005 sem framkvæmdastjóri norska Rauða krossins.

Norska vinstriblokkin vann sigur í þingkosningum í september árið 2021.[1] Støre tók við af Ernu Solberg sem forsætisráðherra Noregs þann 14. október og fer fyrir minnihlutastjórn Verkamannaflokksins og Miðflokksins.[2]

Verkamannaflokkurinn tapaði fylgi fyrstu árin eftir að Støre varð forsætisráðherra. Í sveitastjórnarkosningum árið 2023 lenti Verkamannaflokkurinn í öðru sæti og var þetta í fyrsta skipti í tæpa öld sem flokkurinn hlaut ekki flest atkvæði.[3]

Ríkisstjórn Støre sprakk þann 30. janúar 2025 vegna ósættis milli Verkamannaflokksins og Miðflokksins um innleiðingu fjórða orkupakka Evrópusambandsins, sem Verkamannaflokkurinn vildi innleiða í norskan rétt samkvæmt EES-samstarfinu en Miðflokkurinn ekki.[4]

Støre var endurkjörinn formaður Verkamannaflokksins án mótframboðs 3. apríl 2025. Flokkurinn hafði þá rétt úr kútnum í skoðanakönnunum eftir að Miðflokkurinn yfirgaf stjórnina.[5]

Remove ads

Tenglar

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads