Klóelfting

From Wikipedia, the free encyclopedia

Klóelfting
Remove ads

Klóelfting (fræðiheiti: Equisetum arvense) er planta af ættkvísl elftinga af elftingarætt.

Staðreyndir strax Vísindaleg flokkun, Tvínefni ...
Remove ads

Útlit

Hún hefur gárótta, sívala og liðskipta stöngla sem hafa liðskiptar, kransstæðar greinar. Hún þekkist á því að neðsti liður hverrar greinar er mun lengri en stöngulslíðrið, þetta á þó ekki við um greinarnar á neðstu stöngulliðunum.

Gróöxin, sem kallast skollafætur, skollafingur eða góubeitlar vaxa snemma á vorin löngu áður en elftingin sjálf sést. Þau eru blaðgrænulaus, ljósmóleit með svörtum slíðrum og falla eftir gróþroskun.

Klóelftingin nær 20 til 40 sentímetra hæð og vex gjarnan á röskuðum svæðum, í görðum, vegköntum, mólendi og skógarbotnum.

Remove ads

Annað

Klóelfting hefur 216 litninga (108 pör) sem er fimm sinnum meira en maðurinn sem hefur 46 litninga.

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads