Kreppa
verulegir örðugleikar í efnahagsmálum, með atvinnuleysi og sölutregðu From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Kreppa er hugtak sem haft er um verulega örðugleika í efnahagsmálum, með atvinnuleysi og sölutregðu fyrirtækja. Aðaleinkenni kreppu er ógurlegt verðfall á gjaldmiðlum, fjöldauppsagnir og greiðsluerfiðleikar fyrirtækja og almennings. Kreppuboði er það nefnt sem veit á samdráttarskeið, þ.e. er fyrirboði kreppu.
- Kreppa er einnig á sem rennur úr Brúarjökli.
Remove ads
Bankar og kreppa
Bankar skreppa saman og sumir hrynja til falls í kreppum, sérstaklega þeir sem hafa verið áhættusæknir eða eru illa reknir. Ein skilgreiningin (Demirguc-Kunt og Detragiache, 1998) sem lítur til kreppuboða segir að fjármálakreppa er þegar:
- Hlutfall varúðarfærðra eigna af heildareignum banka sé umfram 10%.
- Björgunaraðgerðir kosti meira en 2% af landsframleiðslu.
- Vandamál fjármálakerfisins leiði til þess að verulegur hluti bankanna sé þjóðnýttur.
- Umfangsmikil áhlaup á banka, þ.e. innlausnafár, eða gripið er til neyðaraðgerða, svo sem innlánsfrystingar eða ábyrgðaryfirlýsinga til að bregðast við vandanum. [1]
Remove ads
Tengt efni
- Efnahagskreppan á Íslandi 2008–2011
- Kreppan mikla
- Heimskreppa
Tilvísanir
Tenglar
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads