Laurence Fishburne

bandarískur leikari From Wikipedia, the free encyclopedia

Laurence Fishburne
Remove ads

Laurence John Fishburne III (fæddur 30. júlí 1961) er bandarískur leikari, leikskáld, leikstjóri og framleiðandi. Hann er þekktastur fyrir hlutverk sín í Matrix-myndunum, What's Love Got to Do with It og CSI: Crime Scene Investigation.

Staðreyndir strax Upplýsingar, Fæddur ...
Remove ads

Einkalíf

Fishburne fæddist í Augusta í Georgíu.[1] Foreldrar hans skildu þegar hann var ungur og hannflutti með móður sinni til Brooklyn í New York-borg þar sem hann ólst upp. Hann hitti föður sinn einu sinni í mánuði.[2][3] Hann útskrifaðist frá Lincoln Square Academy í New York, sem var lokað á níunda áratugnum.

Fishburne giftist leikkonunni Hajnu Moss árið 1985 í Eþíópíu. Saman eiga þau tvö börn: Langston og Montana. Fishburne og Moss skildu um miðjan tíunda áratuginn. Fishburne giftist Ginu Torres árið 2002. Þau eiga saman eitt barn, Delilah, sem er fædd 2007, og búa í New Rochelle í New York.[4] Einnig á hann heimili í New York-borg í Castle Village-hlutanum af Washington Heights á Manhattan.[5]

Þann 24. febrúar 2007 var Fishburne heiðraður með Artist of the Year-verðlaununum frá Harvard Foundation á hinni árlegu sýningu Cultural Rhythms. Hann fékk þessa viðurkenningu sem leikari og skemmtikraftur en einnig fyrir framlög til mannúðarmála. Fishburne er UNICEF-sendiherra.[6] Bæjarstórinn í borginni Cambridge í Massachusetts gaf honum lykilinni að borginni og lýsti 24. febrúar „Laurence Fishburne-daginn“ í borginni.

Í maí 2009 kom Fishburne fram á sviði á National Memorial Day-tónleikunum á Mall í Washington, D.C.[7]

Remove ads

Ferill

Leikhús

Á níunda áratugnum kom hann fram í leikritum á borð við Short Eyes (1984) og Loose Ends (1987). Bæði voru þau sýnd við Second Stage Theatre í New York-borg.

Árið 1991 vann hann Tony-verðlaunin fyrir frammistöðu sína í leikriti August Wilson Two Trains Running.

Árið 2006 lék hann á móti Angelu Bassett í Pasadena Playhouse-uppfærslunni á leikriti August Wilson Fences.[8]

Í apríl 2008 sneri Fishburne aftur á leiksvið fyrir Broadway-sýninguna Thurgood, sem er nýtt leikrit eftir George Stevens, Jr. og leikstýrt af Leonard Foglia. Thurgood var frumsýnt við Booth Theatre þann 30. apríl 2008.[9] Hann vann Drama Desk Award fyrir besta einleikinn.

Sjónvarp

Fishburne byrjaði að leika tólf ára þegar hann fékk sitt fyrsta hlutverk árið 1973 sem Joshua Hall í sápuóperunni, One Life to Live. Fishburne lék aukahlutverk sem Cowboy Curtis með persónu Paul Reubens, Pee Wee Herman, í barnaþáttunum Pee-Wee's Playhouse. Einnig kom hann fram í M.A.S.H.-þættinum „The Tooth Shall Set You Free“ sem Dorsey korporáll.

Þann 18. ágúst 2008 var greint frá því að Fishburne myndi ganga til liðs við CSI: Crime Scene Investigation eftir að William Petersen yfirgæfi þáttinn.[10] Fishburne gekk til liðs við þáttinn í níunda þætti 9. þáttaraðar sem háskólaprófessor og fyrrverandi meinafræðingur.[11] Persónan var kynnt til sögunnar sem ráðgjafi í „19 Down“, sem síðan gengur til liðs við CSI-liðið í „One to Go“. Samkvæmt viðtölum við framleiðendur þegar tilkynningin var gefin út hefur persóna hans það einkenni að geta séð sjálfan sig í raðmorðingjum, nokkuð sem persónan mun ekki segja frá, en það er eitthvað sem fær hann til þess að skilja af hverju ákveðnir glæpamenn verða svona ofbeldishneigðir. Fishburne var einnig spurður og sagðist vera í sæluvímu yfir því að ganga til liðs við þáttinn og ánægður með að fá að leika svona flókna persónu. Hann varð einn af aðalleikurum þáttaraðarinnar í þættinum sem var frumsýndur 22. janúar 2009. Hann yfirgaf þættina í lok elleftu þáttaraðar árið 2011.

Kvikmyndir

Fyrsta kvikmyndahlutverk Fishburne var árið 1975 í myndinni Cornbread, Earl and Me. Árið 1976 fékk hann aukahlutverk í kvikmynd Francis Ford Coppola, Apocalypse Now, þar sem hann lék sautján ára sjómann sem var kallaður mister Clean. Framleiðsla myndarinnar hófst í mars 1976 þegar hann var aðeins fjórtán ára, en hann hafði logið til um aldur til þess að fá hlutverkið. Upptökur tóku svo langan tíma að hann var orðinn sautján ára þegar þeim lauk.

Á fyrri hluta níunda áratugarins lék Fishburne lítið hlutverk í mynd Stevens Spielberg Purpuraliturinn. Árið 1987 lék hann í þriðju Martröð á Álmstræti-myndinni sem einn af sjúkraliðunum á spítalanum. Að auki lék Fishburne persónuna Dap í mynd Spike Lee School Daze (1988). Hann fékk hrós fyrir leik sinn í myndinni, en persónan var afrísk-amerískur stúdent við HBCU.

Árið 1990 lék hann Jimmy Jump í King of New York og árið 1991 lék hann í Boyz N The Hood. Árið 1993 fékk hann sína fyrstu tilnefningu til Óskarsverðlauna fyrir hlutverk sitt sem Ike Turner í What's Love Got to Do with It. Árið 1997 lék Fishburne í vísindahrollvekjunni Event Horizon ásamt Sam Neill. Nú er Fishburne hins vegar þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Morpheus í vísindaskáldsögumyndinni The Matrix.

Fishburne lék hlutverk Morpheus í tveimur framhaldsmyndum af Matrix, The Matrix Reloaded og The Matrix Revolutions. Hann lék á móti Tom Cruise í Mission: Impossible III.

Tónlistarmyndbönd

Fishburne kom fram stuttlega sem sjúkraflutningamaður í tónlistamyndbandi fyrir hljómsveitina The Spooks, í laginu „Things I've Seen“ (2000).

Remove ads

Kvikmyndir og sjónvarp

Nánari upplýsingar Kvikmyndir, Ár ...

Framleiðandi

  • TriBeCa (1993)
  • Hoodlum (1997)
  • Once in the Life (2000)
  • Akeelah and the Bee (2006)

Handritshöfundur

  • Once in the Life (2000)

Leikstjóri

  • Once in the Life (2000)
Remove ads

Verðlaun og tilnefningar

Óskarsverðlaunin

  • 1994: Tilnefndur sem besti leikari fyrir What's Love Got to Do with It

Academy of Science Fiction, Fantasy & Horror Films

  • 2000: Tilnefndur sem besti aukaleikari fyrir The Matrix

Acapulco Black-kvikmyndahátíðin

  • 1998: Tilnefndur sem besti leikari fyrir Hoodlum

BET-verðlaunin

  • 2004: Tilnefndur sem besti leikari

Black Movie-verðlaunin

  • 2006: Verðlaun sem besta kvikmyndin fyrir Akeelah and the Bee
  • 2006: Verðlaun sem besti aukaleikari fyrir Akeelah and the Bee

Black Reel-verðlaunin

  • 2011: Tilnefndur sem besti aukaleikari fyrir Predators
  • 2007: Tilnefndur fyrir bestu kvikmyndina fyrir Akeelah and the Bee
  • 2007: Tilnefndur sem besti aukaleikari fyrir Akeelah and the Bee
  • 2000: Tilnefndur sem besti leikari fyrir The Matrix

Blockbuster Entertainment-verðlaunin

  • 2000: Verðlaun sem besti aukaleikari fyrir The Matrix

Boston Society of Film Critics-verðlaunin

  • 2003: Verðlaun sem besti leikhópur fyrir Mystic River

CableACE-verðlaunin

  • 1997: Verðlaun sem besta kvikmyndin fyrir Miss Ever´s Boys

Chicago International-verðlaunin

  • 2000: Career Achievement-verðlaunin

Emmy-verðlaunin

  • 1997: Verðlaun sem besti leikari í sjónvarpsmynd fyrir Miss Ever's Boys
  • 1997: Tilnefndur sem besti leikari í míniseríu eða sjónvarpsmynd fyrir Miss Ever's Boys
  • 1996: Tilnefndur sem besti leikari í míniseríu eða sjónvarpsmynd fyrir The Tuskegee Airmen
  • 1993: Verðlaun sem besti gestaleikari í dramaseríu fyrir Tribeca

Golden Globe-verðlaunin

  • 1996: Tilnefndur sem besti leikari í míniseríu eða sjónvarpsmynd fyrir Tuskegee Airmen

Hollywood-kvikmyndahátíðin

  • 2006: Verðlaun sem besti leikhópur fyrir Bobby

Image-verðlaunin

  • 2011: Tilnefndur sem besti leikari í dramaseríu fyrir CSI: Crime Scene Investigation
  • 2010: Tilnefndur sem besti leikari í dramaseríu fyrir CSI: Crime Scene Investigation
  • 2009: Tilnefndur sem besti aukaleikari í dramaseríu fyrir CSI: Crime Scene Investigation
  • 2007: Tilnefndur sem besti leikari fyrir Akeeleh and the Bee
  • 2006: Tilnefndur sem besti leikari fyrir Assault on Precinct 13
  • 2004: Tilnefndur sem besti leikari fyrir The Matrix: Revolution
  • 2000: Tilnefndur sem besti leikari fyrir The Matrix
  • 1999: Verðlaun sem besti leikari í míniseríu eða sjónvarpsmynd fyrir Always Outnumbered
  • 1998: Verðlaun sem besti leikari í míniseríu eða sjónvarpsmynd fyrir Miss Ever's Boys
  • 1998: Tilnefndur sem besti leikari fyrir Hoodlum
  • 1996: Verðlaun sem besti leikari í míniseríu eða sjónvarpsmynd fyrir Tuskegee Airmen
  • 1996: Tilnefndur sem besti leikari fyrir Othello

Independent Spirit-verðlaunin

  • 1993: Tilnefndur sem besti leikari fyrir Cover Lead

MTV Movie-verðlaunin

PGA-verðlaunin

  • 1998: Television Producer of the Year award in Longform fyrir Miss Ever's Boys

Phoenix-kvikmyndahátíðin

  • 2006: Copper Wing Tribute-verðlaunin

Satellite-verðlaunin

  • 1999: Tilnefndur sem besti leikari í míniseríu eða sjónvarpsmynd fyrir Always Outnumbered

Screen Actors Guild-verðlaunin

  • 2007: Tilnefndur sem besti leikhópur fyrir Bobby
  • 2004: Tilnefndur sem besti leikhópur fyrir Mystic River
  • 1996: Tilnefndur sem besti leikari í míniseríu eða sjónvarpsmynd fyrir Tuskegee Airmen

ShoWest Convention USA

  • 2008: Verðlaun sem besti leikhópur fyrir 21
  • 2006: Distinguished Decade of Achievement in Film
Remove ads

Tilvísanir

Heimildir

Tenglar

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads