Luka Modrić

From Wikipedia, the free encyclopedia

Luka Modrić
Remove ads

Luka Modrić (fæddur 9. september 1985) er króatískur knattspyrnumaður sem spilar með AC Milan og króatíska landsliðinu. Hann þykir einn besti miðherji í heimi og hefur unnið verðlaun fyrir þá stöðu í La Liga og hjá UEFA.

Staðreyndir strax Upplýsingar, Núverandi lið ...

Modric fæddist í borginni Zadar við Adríahafsströnd Króatíu. Æska hans var lituð af Júgóslavíustríðinu og fjölskylda hans bjó á hótelum í nokkur ár.

Eftir að hafa vakið athygli með heimaliði borgarinnar hélt hann til Dinamo Zagreb árið 2002. Árið 2005 hóf hann að spila með aðalliðinu. Modric vann þrjá deildartitla og bikartitla með félaginu.

Árið 2008 hélt hann til Tottenham Hotspur og árið 2012 til Real Madrid. Hann vann spænsku deildina fjórum sinnum og Meistaradeild Evrópu sex sinnum með Real.

Árið 2025 hélt hann til Ítalíu og gerði samning við AC Milan.

Modric var valinn besti leikmaðurinn á HM 2018 í Rússlandi þegar hann leiddi Króata til silfurverðlauna. FIFA valdi hann einnig sem leikmann ársins. [1] Einnig hlaut hann gullknöttinn sama ár.

Modric hefur spilað meira en 1000 leiki í öllum keppnum.

Remove ads

Heimild

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads