Maia Sandu
Forseti Moldóvu From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Maia Sandu (f. 24. maí 1972) er moldóvsk stjórnmálakona og núverandi forseti Moldóvu. Hún var kjörin forseti árið 2020 og hafði áður verið forsætisráðherra landsins árið 2019. Sandu var leiðtogi Aðgerða og samstöðu, mið-hægriflokks sem vill styrkja tengsl Moldóvu við Evrópusambandið.[1]
Sandu er fyrrverandi hagfræðingur hjá Alþjóðabankanum og hefur jafnframt gegnt embætti menntamálaráðherra Moldóvu. Í þingkosningum ársins 2019 leiddi Sandu kosningabandalagið ACUM og hafði það að yfirlýstri stefnu að vinna bug á spillingu í Moldóvu. Sandu vændi stjórnvöld um að hafa eitrað fyrir sér í kosningabaráttunni.[2]
Sandu var kjörin forseti í annarri umferð forsetakosninga Moldóvu árið 2020 með 57 prósentum atkvæða. Hún sigraði sitjandi forsetann Igor Dodon, sem hafði talað fyrir nánara samstarfi Moldóvu við Rússland og hafði verið opinberlega studdur af Vladímír Pútín Rússlandsforseta.[3] Eftir sigur sinn sagðist Sandu vilja stuðla að „raunverulegu jafnvægi“ Moldóvu milli Rússlands og Vesturlanda, vinna gegn landlægri spillingu og reyna að ná til fjárfesta til að bæta efnahag Moldóvu.[4]
Sandu rauf þing og kallaði til þingkosninga eftir að hún tók við forsetaembætti. Í kjölfari vann flokkur hennar, Aðgerðir og samstaða, meirihluta á moldóvska þinginu.[5]
Sandu vann endurkjör með naumum meirihluta atkvæða í seinni umferð forsetakosninganna þann 3. nóvember 2024. Hún vann sigur gegn Alexandr Stoianoglo, sem var studdur af sósíalískum flokkum sem vildu halda nánara sambandi við Rússland frekar en að leita til vesturs.[6]
Remove ads
Tilvísanir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads