Margrét Guðnadóttir

From Wikipedia, the free encyclopedia

Margrét Guðnadóttir
Remove ads

Margrét Guðmunda Guðnadóttir (f. 7. júlí 1929, d. 2. janúar 2018) var læknir og veirufræðingur[1] og fyrst kvenna til að gegna embætti prófessors við Háskóla Íslands.[2]

Staðreyndir strax Fædd, Dáin ...

Ferill

Margrét lauk stúdentsprófi frá stærðfræðideild Menntaskólans í Reykjavík vorið 1949. Um haustið hóf hún nám í læknisfræði við Háskóla Íslands og útskrifaðist þaðan vorið 1956. Sumrin 1954 og 1955 vann hún á Tilraunastöðinni á Keldum við lungnabólgurannsóknir og að athugunum í sambandi við útbreiðslu á inflúensufaraldri.[1] Eftir útskrift úr læknadeildinni vorið 1956 vann hún eitt ár á Keldum. Fyrsta verkefnið hennar var að kortleggja útbreiðslu mænusóttarfaraldurs sem skall á haustið 1955 á Íslandi. Þetta var liður í því að undirbúa bólusetningu gegn mænusótt sumarið 1957.[3]

Sumarið 1957 fór Margrét á vegum Keldna til Bretlands og Bandaríkjanna í sex mánaða sérfræðinám[3] í veirufræði.[1] Í Bretlandi var hún í námi við Central Public Health Laboratory í London, London School of Hygiene og í Bandaríkjunum við Communicable Disease Center í Montgomery í Alabama. Í kjölfarið fór hún í tveggja ára (1958-1960) framhaldsnám í veirufræði við Yale háskóla í New Haven í Connecticut.[4] Þar lagði hún stund á rannsóknir á mænusótt og greiningu á veirusóttum í fólki. Á árunum 1960-1969 starfaði Margrét sem sérfræðingur í veirufræði við Tilraunastöðina á Keldum þar sem hún rannsakaði visnu og mæðiveiki og ýmsa sjúkdóma í fólki. Árið 1969 tók hún við prófessorsembætti í sýklafræði við Læknadeild Háskóla Íslands[1] og varð þar með fyrsta konan til að gegna prófessorsembætti við skólann.[5] Á þessum tíma voru konur hvorki dósentar né lektorar en um níu konur voru stundakennarar/aukakennarar.[6] Margrét gegndi stöðu prófessors í 30 ár, til ársins 1999 er hún lét af störfum vegna aldurs. Árið 1974 setti Margrét á laggirnar Rannsóknastofu Háskólans í veirufræði við Landspítalann og var forstöðumaður hennar til ársins 1994.[3]

Þann 10. nóvember 2011, á aldarafmæli Háskóla Íslands, var Margrét sæmd heiðursdoktorsnafnbót við Læknadeild skólans[7] fyrir framlag sitt til veirufræðinnar og greiningu veirusýkinga. Hún var einnig heiðursfélagi í Hinu íslenska náttúrufræðifélagi.

Margrét rannsakaði m.a. hæggenga veirusjúkdóma í sauðfé, eðli visnu-mæðiveikisýkingar og bóluefni við henni og skrifaði fjölda greina í innlend[8][9][10][11] og erlend rit.[12][13][14][15]

Sonardóttir Margrétar er Hildur Guðnadóttir sem hlaut meðal annars Óskarsverðlaun fyrir kvikmyndatónlist.

Remove ads

Heimildir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads