Hildur Guðnadóttir

Íslenskt tónskáld From Wikipedia, the free encyclopedia

Hildur Guðnadóttir
Remove ads

Hildur Ingveldardóttir Guðnadóttir (f. 4. september 1982) er íslenskt tónskáld og tónlistarkona. Hildur ólst upp í Hafnarfirði[1] og er menntaður sellóleikari. Hún hefur spilað með hljómsveitunum Pan Sonic, Throbbing Gristle, Woofer, Rúnk, Múm og Stórsveit Nix Noltes. Hún hefur jafnframt leikið á tónleikum með Animal Collective og Sunn O))).

Staðreyndir strax Upplýsingar, Fædd ...
Remove ads

Ferill

1997 stofnaði Hildur ásamt vinum sínum úr Hafnarfirði sveitina Woofer sem tók þátt í Músíktilraunum það sama ár. Woofer komust í úrslit en náðu ekki verðlaunasæti þrátt fyrir að vekja athygli. Í kjölfarið kom út þriggja laga smáskífan Táfýla. Haustið 1997 kom svo út eina stóra plata sveitarinnar sem bar sama nafn og hljómsveitin, Woofer.

Hildur stofnaði árið 2001 hljómsveitina Rúnk ásamt Svavari Pétri Eysteinssyni (Prins Póló), Benedikt Hermanni Hermannssyni (Benni Hemm Hemm), Birni Kristjánssyni (Borko) og Ólafi Birni Ólafssyni. Þá um jólin gaf sveitin út jólaplötuna Jólin eru og ári síðar plötuna Gengi Dahls sem naut talsverðra vinsælda. Sveitin kom að stofnun tónlistarhátíðarinnar Innipúkinn.

Árið 2006 gaf Hildur út sólóplötu undir titlinum Lost in Hildurness, sem var síðar endurútgefin með titlinum Mount A. Á plötunni spilaði Hildur sjálf á öll hljóðfærin og stjórnaði hljóðupptökunum.[2] Platan var tekin upp í New York-borg og á Hólum í Hjaltadal. Árið 2009 gaf hún út aðra sólóplötu sína, Without Sinking, hjá bresku tónlistarútgáfunni Touch Music.

Auk þess að spila á selló er Hildur einnig söngvari og kórstjóri. Hún hefur meðal annars stýrt kór á tónleikum Throbbing Gristle í Austurríki og London. Árið 2006 samdi Hildur undirleik fyrir leikritið Sumardag sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu.[3] Hún hefur einnig samið tónlist fyrir dönsku kvikmyndina Kapringen (2012),[4][5] kvikmyndina Mary Magdalene (2018) (í samstarfi við Jóhann Jóhannsson),[6] Sicario: Day of the Soldado (2018) og sjónvarpsþáttaröðina Chernobyl (2019). Hún samdi einnig tónlistina fyrir kvikmyndina Joker árið 2019 og vann fyrir hana Premio Soundtrack Stars-verðlaunin á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum sama ár.[7]

Í nóvember 2019 var Hildur tilnefnd til Grammy-verðlauna fyrir tónlist sína í Chernobyl.[8] Hún vann verðlaunin á Grammy-verðlaunahátíðinni þann 26. janúar 2020.[9]

Árið 2020 vann hún Golden Globe-verðlaun fyrir tónlist við kvikmyndina Joker og var fyrsta konan til að hljóta þessi verðlaun í 19 ár. [10] Þann 13. janúar sama ár var hún jafnframt tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir tónlistina úr myndinni. Hildur er sjöundi Íslendingurinn sem hefur hlotið tilnefningu til Óskarsverðlaunanna.[11] Hildur vann Óskarsverðlaunin fyrir bestu frumsömdu tónlistina og varð fyrsti Íslendingurinn til að vinna Óskarsverðlaun. Hildur er jafnframt fjórða konan frá upphafi sem hefur unnið Óskarsverðlaun fyrir frumsamda kvikmyndatónlist[12] en er fyrsta konan sem hlýtur þau ein.

Hildur var sæmd riddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu fyrir framlag til íslenskrar og alþjóðlegrar tónlistar þann 17. júní 2020.[13]

Remove ads

Fjölskylda

Foreldrar Hildar eru Ingveldur Guðrún Ólafsdóttir óperusöngvari og Guðni Franzson tónskáld og klarinettuleikari. Eiginmaður Hildar er bandaríska tónskáldið Sam Slater. Hildur á einn son.[1] Föðuramma Hildar var Margrét Guðnadóttir (1929-2018) læknir og veirufræðingur og fyrsta konan sem skipuð var prófessor við Háskóla Íslands.

Útgefin verk

Thumb
Hildur Guðnadóttir 2009 í London.

Sólóplötur

  • Mount A (sem Lost in Hildurness) (12 Tónar 2006)
  • Without Sinking (Touch 2009), gefin út á vínylplötu með viðbótum 2011
  • Mount A (sem Hildur Guðnadóttir) (Touch 2010)
  • Leyfðu Ljósinu (Touch, 2012), með fjölrásaútgáfu á USB[14]
  • Saman (Touch, 2014), með vínylútgáfu

Samstarfsplötur

  • Rúnk – Ghengi Dahls (Flottur kúltúr og gott músik) 2001
  • Mr. Schmucks Farm – Good Sound (Oral 2005)
  • Stórsveit Nix NoltesOrkídeur Hawai (12 Tónar/Bubblecore 2005)
  • Angel og Hildur Guðnadóttir – In Transmediale (Oral 2006)
  • Hildur Guðnadóttir með Jóhanni JóhannssyniTu Non Mi Perderai Mai (Touch 2006)
  • Nico MuhlySpeaks volumes (Bedroom Community 2006)
  • Valgeir SigurðssonEquilibrium Is Restored (Bedroom Community 2007)
  • Ben FrostTheory of Machines (Bedroom Community 2006)
  • Skúli SverrissonSería (12 Tónar 2006)
  • Pan SonicKatodivaihe/Cathodephase (Blast First Petite 2007)
  • MúmGo Go Smear the Poison Ivy (Fat Cat 2007)
  • Hildur Guðnadóttir, BJ Nilsen and Stilluppsteypa – Second Childhood (Quecksilber 2007)
  • Múm - Sing Along to Songs You Don't Know (Morr Music 2009)
  • The KnifeTomorrow, In a Year (2010)
  • Wildbirds & PeacedrumsRivers (The Leaf Label 2010)
  • Sōtaisei Riron + Keiichirō Shibuya – Blue (Strings Edit) feat. Hildur Guðnadóttir (Commmons 2010)[15]
  • Skúli Sverrisson – Sería II (Sería Music 2010)
  • HauschkaPan Tone (Sonic Pieces 2011)
  • Múm - Smilewound (Morr Music 2013)
  • Craig Sutherland – Strong Island (2017)[16]
  • Sunn O)))Life Metal (2019)
  • Sunn O)))Pyroclasts (2019)
  • Sam Slater - Battlefield 2042 (2021)

Kvikmyndatónlist

Nánari upplýsingar Ár, Titill ...

Sjónvarpsefni

Nánari upplýsingar Ár, Titill ...
Remove ads

Verðlaun og tilnefningar

Nánari upplýsingar Verð­laun, Ár ...
Remove ads

Punktar

  1. jafnaði Marco Beltrami og Buck Sanders fyrir Ford v Ferrari

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads