Nökkvi Þeyr Þórisson

From Wikipedia, the free encyclopedia

Remove ads

Nökkvi Þeyr Þórisson (fæddur 13. ágúst 1999) er íslenskur knattspyrnumaður sem spilar með Sparta Rotterdam í Hollandi.

Staðreyndir strax Upplýsingar, Yngriflokkaferill ...
Remove ads

Félagslið

Nökkvi spilaði sem ungmenni með Reyni Dalvík og Þór Akureyri og hélt loks til KA. Hann skoraði 17 mörk í 20 leikjum í Bestu deildinni 2022 fyrir KA og varð markahæsti leikmaður tímabilsins þrátt fyrir að hafa misst af síðustu leikjunum vegna félagaskipta. Hann var valinn besti leikmaður tímabilsins af leikmönnum. [2]

Hann vakti athygli utan landsteinanna síðsumars og gerði samning við belgíska liðið, Beerschot í Antwerpen í byrjun september 2022.[3]

Árið 2025 gerði Nökkvi þriggja ára samning við Sparta Rotterdam. [4]

Remove ads

Landslið

Nökkvi spilaði sinn fyrsta A-landsleik í janúar 2023 í vináttuleik gegn Eistlandi.

Fjölskylda

Faðir Nökkva, Þórir Áskelsson, og föðurbróðir, Halldór Áskelsson, spiluðu knattspyrnu fyrir Þór Akureyri og Halldór með A-landsliðinu. Tvíburabróðir Nökkva, Þorri Mar Þórisson, spilaði með honum í KA, Þór og Reyni.

Tenglar

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads