Neil Armstrong
Bandarískur geimfari og fyrsti maðurinn á tunglinu From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Neil Armstrong (5. ágúst 1930 – 25. ágúst 2012) var bandarískur geimfari og flugmaður. Hann er þekktastur fyrir að vera fyrsti maðurinn til að stíga fæti á tunglið. Það gerði hann í annarri og síðustu geimferð sinni, með Apollo 11 þann 20. júlí 1969. Hann varði, ásamt Buzz Aldrin tveimur og hálfri klukkustund á yfirborði tunglsins á meðan Michael Collins var á sporbraut fyrir ofan.
Remove ads
Æfingar á Íslandi
Aðalgrein: Æfingar tunglfara í Þingeyjarsýslum
Árið 1967 kom Neil Armstrong til Íslands til þjálfunar í vettvangsjarðfræði í Þingeyjarsýslum undir leiðsögn jarðfræðinganna Sigurðar Þórarinssonar og Guðmundar Sigvaldasonar. Armstrong nýtti ferðina einnig til að veiða í Laxá í Aðaldal ásamt félaga sínum Bill Anders. Myndir og munir frá æfingum geimfaranna eru til sýnis í Könnunarsögusafninu á Húsavík.
Remove ads
Tenglar
- Ítarlegar upplýsingar um Apollo 11 á Stjörnufræðivefnum Geymt 13 febrúar 2010 í Wayback Machine
- Æfingar tunglfaranna á Íslandi 1965 og 1967 Geymt 18 janúar 2018 í Wayback Machine

Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Neil Armstrong.
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads