Papuacedrus papuana

From Wikipedia, the free encyclopedia

Papuacedrus papuana
Remove ads

Papuacedrus papuana er tegund barrtrjáa í grátviðarætt (Cupressaceae), eina tegundin í ættkvíslinni Papuacedrus. Sumir grasafræðingar telja hana ekki í sérstakri ættkvísl, heldur telja hana innan Libocedrus. Hún er ættuð frá Nýju-Gíneu og indónesíska héraðinu Maluku.[2]

Staðreyndir strax Ástand stofns, Vísindaleg flokkun ...

Hún er yfirleitt meðalstórt til stórt sígrænt tré, 16–50 m hátt (í mikilli hæð eingöngu runni að 3 m hár). Hreisturlaga barrið er í flötum sveipum, í gagnstæðum pörum til skiftis, 2–3 mm langt á fullvöxnum trjám og að 20 mm langt á yngri trjám. Könglarnir eru 1–2 sm langir, með fjórar köngulskeljar.[3]

Tegundin er með tvö afbrigði, sem er helst hægt að greina í sundur á ungstigsblöðum á ungum plöntum (barr á eldri trjám er næstum ekki hægt að greina í sundur):

  • Papuacedrus papuana var. papuana (syn. Libocedrus papuana F.Muell., Libocedrus torricellensis Schltr., Papuacedrus torricellensis (Schltr.) H.L.Li). New Guinea, austur af 138°A lengdargráðu; 620-3,800 m hæð.
  • Papuacedrus papuana var. arfakensis (Gibbs) R.J.Johns (syn. Libocedrus arfakensis Gibbs, Papuacedrus arfakensis (Gibbs) H.L.Li). New Guinea, vestur af 138°A lengdargráðu, Moluccas; 700-2,400 m hæð.
Remove ads

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads