Pebble
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Pebble er snjallúr þróað af Pebble Technology Corporation.[1] Það var fyrsta sinnar tegundar sem kom á markað og virkaði bæði fyrir Android og iOS stýrikerfið.[2] Fyrsta útgáfan kom út árið 2013 og var hún fjármögnuð í gegnum Kickstarter. Úrið er með baklýstum 1,26 tommu rafeindapappírsskjá og fæst í tveimur útgáfum: Pebble og Pebble Steel. Úrin eru með svipaða virkni, tengjast bæði símanum í gegnum Bluetooth, skilaboð, tölvupóstur, símtöl og tilkynningar frá samfélagsmiðlum birtast á skjánum, en úrin titra einnig þegar skilaboð berast á samtengdu tækni.

Remove ads
Pebble Steel

Pebble Steel var kynnt til sögunnar á CES-ráðstefnunni árið 2014. Úrið er þynnra, og er ytra lag úrsins úr ryðfríu stáli. Úrið kemur með leður ól en einnig er hægt að fá ól úr ryðfríu stáli. Úrið er vatnshelt niður að 50m og ólíkt öðrum snjallúrum þar sem rafhlaðan endist í allt að 7 daga.[3]
Fjármögnun
Pebble-verkefnið byrjaði út fra Kickstarter-söfnun sem sett var á stað árið 2012. Eric Migicovsky hóf Kickstarter söfnunina þann 11. apríl 2012 með það markmið að safna $100.000. Þeir sem ákváðu að styrkja verkefnið um að minnsta kosti $115 áttu að fá Pebble úr þegar framleiðsla hæfist. Eftir einungis tvær klukkustundir var búið að fjármagna framleiðsluna og innan sex daga var þetta orðin stærsta fjármögnun Kickstarter og búið að styrkja Migicovsky um $4,7 milljónir. Þegar fjármögnun verkefnisins lauk þann 18. mai 2012 var búið að safna $10,3 milljónum.[4]. Hægt er að skoða Kickstarter síðuna hérna.
Listi yfir upphæðir sem hægt var að styrkja verkefnið um
Samtals voru 68.929 einstaklingar sem styrktu verkefnið fyrir samtals $10.266.845.[5]
Remove ads
Heimildir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads