Rishi Sunak
(f. 1980) er breskur stjórnmálamaður og forsætisráðherra Bretlands From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Rishi Sunak (fæddur 12. maí 1980 í Southampton) er Breskur stjórnmálamaður sem var forsætisráðherra Bretlands frá 2022 til 2024. Hann var leiðtogi Breska íhaldsflokksins frá október 2022 til nóvember 2024.
Remove ads
Æviágrip
Sunak sam heimspeki, stjórnmálafræði og hagfræði við Oxford-háskóla og síðar MBA-viðskiptagráðu frá Stanford-háskóla í Kaliforníu. Hann starfaði meðal annars hjá Goldman-Sachs fjárfestingarbankanum eftir námsferilinn. [1]
Sunak hefur verið þingmaður frá 2015 og gegndi embætti fjármálaráðherra frá 2019 til 2020. Í júlí 2022 bauð hann sig fram til forsætisráðherra eftir að Boris Johnson sagði af sér en tapaði fyrir Liz Truss. Truss var ekki lengi í embætti og eftir stjórnarkreppu í október sama ár sagði hún af sér. Sunak hafði betur í leiðtogavali Íhaldsflokksins og varð fyrsti forsætisráðherra landsins af asískum ættum og sá yngsti síðan 1812.
Sunak lét efna til þingkosninga þann 4. júlí árið 2024 en í þeim kosningum galt Íhaldsflokkurinn afhroð á móti Verkamannaflokknum. Sunak tilkynnti í kjölfarið að hann myndi segja af sér sem leiðtogi Íhaldsflokksins.[2]
Remove ads
Einkahagir
Sunak er af indverskum ættum og er hindúi. Hann er giftur Akshata Murty, dóttur indversks milljarðamærings. Hjónin eru 222. ríkasta par Bretlands. Murty hefur verið gagnrýnd fyrir að telja erlendar tekjur af fyrirtækjum sínum ekki til skatts Í Bretlandi.
Tilvísanir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads