Pólska þingið
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Pólska þingið skiptist í efri deild (öldungadeild) sem kallast Senat og neðri deild sem heitir Sejm. Báðar deildir eru til húsa í sömu byggingu í Varsjá. Á pólsku er ekkert opinbert samheiti yfir deildirnar tvær: í stjórnarskránni er einungis fjallað um Senat og Sejm.

Þingmenn í báðum deildum eru kosnir á fjögurra ára fresti. Í neðri deild sitja 460 þingmenn en í efri deild sitja 100 öldungadeildarþingmenn. Til þess að frumvarp geti orðið að lögum verða báðar deildar að samþykkja það. Þingmenn geta þó hnekkt ákvörðun öldungadeildarþingmanna um að hafna frumvarpi.
Við tiltekin tilefni kallar formaður Sejm báðar deildir saman í svokallað þjóðþing (p. Zgromadzenie Zarodowe). Þetta er oftast gert til að halda athöfn svo sem að setja nýjan forseta í embætti.
Remove ads
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads