Sidney Poitier

Bahamsk-bandarískur leikari (1927-2022) From Wikipedia, the free encyclopedia

Sidney Poitier
Remove ads

Sidney Poitier (20. febrúar 1927 – 6. janúar 2022) var bahamsk-bandarískur leikari, leikstjóri og sendiherra. Poitier varð árið 1963 fyrstur svartra karlmanna til að vinna Óskarsverðlaun sem besti leikarinn, en hann vann fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Liljur vallarins (e. Lilies of the Field).

Staðreyndir strax Upplýsingar, Fæddur ...
Remove ads

Æviágrip

Sidney Poitier fæddist í Miami í Flórída árið 1927 og var sonur innflytjenda frá Bahamaeyjum. Faðir hans var eigandi tóbaksræktunarbúgarðs í Nassá. Sidney Poitier gekk í skóla í Nassá en flutti aftur til Miami þegar hann var fimmtán ára gamall. Hann flutti þaðan til New York-borgar og vann þar sem uppvaskari.[1]

Þegar Poitier var sautján ára gamall laug hann um aldur sinn og skráði sig í landgöngulið Bandaríkjahers. Hann gegndi tveggja ára þjónustu í hernum en tók síðan að sér ýmis borgaraleg störf, meðal annars sem öryggisvörður á bílastæðum, byggingarverkamaður, vörubílstjóri og hafnarverkamaður. Eftir þessi störf ákvað Poitier að svara auglýsingu eftir leikara hjá blökkumannaleikfélaginu American Negro Theater í New York en eftir prufur var honum hafnað þar sem hann talaði með Kyrrahafseyjahreim sem var New York-búum illskiljanlegur.[1]

Á næstu árum vann Poitier að því að losna við bahamska hreiminn með því að hlusta á útvarp og endurtaka það sem sagt var. Hann var á endanum ráðinn sem dyravörður og sviðsmaður hjá American Negro Theater en hann vann sig fljótt upp í að leika aukahlutverk í sýningum leikhússins og fór síðan að taka að sér aðalhlutverk. Árið 1948 birtist Poitier í aðalhlutverki á Broadway í uppsetningu á Lýsiströtu.[1]

Poitier birtist árið 1950 í fyrstu kvikmynd sinni, No Way Out. Hann varð á næstu árum fyrstur bandarískra blökkumanna til að hasla sér völl sem eiginleg kvikmyndastjarna, en svartir leikarar höfðu áður aðallega birst í aukahlutverkum sem undirsátar hvítra aðalleikara.[1] Allt fram á áttunda áratuginn var Poitier svo til eini blökkumaðurinn sem hlaut aðalhlutverk sem leikari í Hollywood-kvikmyndum. Ímynd Poitiers í þessum myndum var gjarnan sem friðelskandi og geðþekk persóna sem fórnar sjálfum sér í þágu hvítra og leiðir hjá sér kynþáttafordóma þeirra í sinn garð.[2]

Árið 1963 birtist Poitier í kvikmyndinni Liljur vallarins (e. Lilies of the Field) sem Homer Smith, þúsundþjalasmiður sem fellst á að hjálpa fimm nunnum sem hafa flúið frá Austur-Þýskalandi að byggja kapellu í eyðimörkinni í Arizona. Með hlutverki sínu í myndinni hlaut Poitier Óskarsverðlaun sem besti karlleikari í aðalhlutverki og varð þar með fyrstur svartra leikara til að vinna verðlaun í þessum flokki.[1] Árið 1968 mældist Poitier vinsælasti leikari Bandaríkjanna í skoðanakönnun Gallup.[3]

Í byrjun áttunda áratugarins flutti Poitier til Bahamaeyja, þar sem hann kom sér upp glæsiheimili í Nassá. Hann hafði þá nýlega skilið við fyrstu eiginkonu sína, Juanitu Hardy, sem hann hafði kynnst þegar hún vann sem dansari í leikhúsinu í New York.[4]

Poitier var virkur sem leikari fram á efri ár. Eftir að hann hætti að birtast í kvikmyndum vann hann sem sendiherra Bahamaeyja í Japan frá 1997 til 2007.[5] Poitier lést þann 6. janúar 2022, þá 94 ára að aldri.[6]

Remove ads

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads