Stóra planið
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Stóra planið (e. The Higher Force) er íslensk gamanmynd. Myndin var frumsýnd 28. mars 2008 í Kringlubíói og fór í almenna sýningar sama dag. Útgefendur eru Poppoli Pictures í samstarfi við Kukl ehf.
Remove ads
Söguþráður

Myndin fjallar um Davíð (Pétur Jóhann Sigfússon), sem missti litla bróður sinn þegar hann var yngri og hefur síðan leitað sér aðstoðar með því að horfa á kínverskt sölumyndband. Myndbandið heitir The Higher Force en Davíð kýs að kalla það Stóra planið. Davíð er meðlimur í handrukkaragengi en hinir meðlimirnir gera lítið úr honum við hvert tækifæri. Davíð trúir því þó að hans bíði annað stærra lífshlutverk með hjálp Stóra plansins.
Davíð kynnist svo Haraldi (Eggert Þorleifsson), einmana grunnskólakennari, sem ákveður að veita Davíð leiðsögn í lífinu. Síðar trúir Davíð Haraldi fyrir því að hann sé meðlimur í glæpagengi. Haraldur lýgur því þá í Davíð að hann sé sjálfur glæpakóngur. Hann segist flytja ólöglega inn leynilegan varning, eiga sæg af íbúðum og hafi marga grunsamlega menn í vinnu. Þegar hinir meðlimirnir í handrukkaragengi Davíðs frétta að hann þekki Harald, hinn mikla glæpakóng, hætta þeir að gera lítið úr honum og við það verður hann virtur meðlimur í genginu. Davíð er fullviss um að þessi mikla umbreyting eigi hann Stóra planinu að þakka.
Það líður svo að því að foringi handrukkarafélagsins vill losna við stóra glæpakónginn, Harald, og biður Davíð að láta til skara skríða og ekki síðar en strax.
Remove ads
Framleiðsla
Poppoli Pictures og Kukl ehf. starfa saman að framleiðslu kvikmyndarinnar. Þorvarður Björgúlfsson frá Kukl mun sjá um stafrænar upptökur á þessari mynd (sjá High-definition video) og þannig tryggja að þessi tiltölulega kostnaðarlitla kvikmynd hafi upp á mikil gæði að bjóða.[2]
Leikarar
- Pétur Jóhann Sigfússon sem Davíð: Trúir að Stóra planið muni breyta lífi sínu.
- Eggert Þorleifsson sem Haraldur: Einmana grunnskólakennari
- Ingvar Eggert Sigurðsson sem Magnús
- Jón Gnarr sem ráðgjafi
- Sigurjón Kjartansson sem Óskar
- Benedikt Erlingsson sem Snati
- Ilmur Kristjánsdóttir sem Júlía
- Michael Imperioli sem Alexander
- Robert 'Toshi' Kar Yuen Chan sem Shun-Yee
- Jóhann G. Jóhannsson sem Ásgeir
- Erpur Eyvindarson sem Elvar
- Unnur Vilhjálmsdóttir sem Anna
- Yu Lu sem The Higher Force
- Stefan Schaefer sem Wolfi
- Zlatko Krickic sem Mustang
- Ómar Örn Hauksson sem Myndbandsgæji
- Hjálmar Hjálmarsson sem Sveinbjörn
- Þorsteinn Guðmundsson sem Gunnólfur
- Hilmir Snær Guðnason
Tilvísanir
Tenglar
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads