Hun Sen
Forsætisráðherra Kambódíu frá 1984 / From Wikipedia, the free encyclopedia
Hun Sen[1] (f. 4. apríl 1951 eða 5. ágúst 1952, heimildum ber ekki saman) er fyrrverandi forsætisráðherra Kambódíu og hefur verið helsti valdmaður í landinu allt frá 1979. Hann ber nú opinberan heiðurstitilinn Samdech Akkak Moha Sena Pedey Decho. Hann er helsti ráðamaður í Alþýðuflokki Kambódíu sem hefur verið við völd allt frá innrás Víetnama 1979 sem gerð var til að hrekja Rauðu khmerana frá völdum. Sjálfur hafði Hun Sen verið liðsmaður Rauðu khmeranna þar til að hann flúði land 1977.
Staðreyndir strax Forsætisráðherra Kambódíu, Þjóðhöfðingi ...
Hun Sen ហ៊ុន សែន | |
---|---|
Forsætisráðherra Kambódíu | |
Í embætti 30. nóvember 1998 – 22. ágúst 2023 | |
Þjóðhöfðingi | Norodom Sihanouk Norodom Sihamoni |
Forveri | Ung Huot |
Eftirmaður | Hun Manet |
Í embætti 26. desember 1984 – 2. júlí 1993 | |
Forseti | Heng Samrin (fyrir 1992) Chea Sim (1992—1993) Norodom Sihanouk (1993) |
Forveri | Chan Sy |
Eftirmaður | Norodom Ranariddh |
Annar forsætisráðherra Kambódíu | |
Í embætti 2. júlí 1993 – 30. nóvember 1998 | |
Forsætisráðherra | Norodom Ranariddh (1993–1997) Ung Huot (1997–1998) |
Forveri | Norodom Ranariddh sem eini forsætisráðherrann |
Eftirmaður | Hann sjálfur sem eini forsætisráðherrann |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 5. ágúst 1952 (1952-08-05) (71 árs) Kampong Cham, Kambódíu |
Þjóðerni | Kambódískur |
Stjórnmálaflokkur | Alþýðuflokkur Kambódíu |
Maki | Bun Rany (g. 1976) |
Börn | Kamsot, Manet, Mana, Manith, Many, Mali, Malis |
Undirskrift |
Loka