Úkraínsk mannréttindasamtök From Wikipedia, the free encyclopedia
Miðstöð borgaralegra réttinda (úkraínska: Центр Громадянських Свобод; umritað Tsjentr Hromadjanskykh Svobod) eru mannréttindasamtök í Úkraínu sem leidd eru af lögfræðingnum Oleksöndru Matvíjtsjúk.[1] Samtökin voru stofnuð í Kænugarði árið 2007.[2]
Miðstöð borgaralegra réttinda Центр Громадянських Свобод | |
---|---|
Stofnun | 2007 |
Gerð | Óháð samtök, mannréttindasamtök |
Höfuðstöðvar | Kænugarði, Úkraínu |
Formaður | Oleksandra Matvíjtsjúk |
Vefsíða | ccl.org.ua |
Verðlaun | Friðarverðlaun Nóbels (2022) |
Samtökin hlutu friðarverðlaun Nóbels árið 2022 ásamt Ales Bjaljatskí og rússnesku mannréttindasamtökunum Memorial.[3] Þetta eru fyrstu Nóbelsverðlaunin sem renna til úkraínsks borgara eða samtaka.
Miðstöð borgaralegra réttinda vinnur að því að leggja fram frumvörp að lagabreytingum til að gera Úkraínu lýðræðislegri og auka stjórn almennings á löggæslu og dómkerfi landsins.[4] Samtökin eru jafnframt í forsvari alþjóðlegra herferða til lausnar fólks sem hefur verið ólöglega fangelsað í Rússlandi og á hernámssvæðum Rússa á Krímskaga og í Donbas.[4][5] Ein helsta áhersla samtakanna er að uppfæra hegningarlög Úkraínu.[4]
Frá því að innrás Rússa í Úkraínu hófst árið 2022 hefur Miðstöð borgaralegra réttinda fengist við að kortleggja stríðsglæpi rússneska innrásarhersins. Við veitingu Nóbelsverðlaunanna sagði Nóbelsnefndin það starf ómetanlegt svo hægt yrði að draga hina seku til ábyrgðar.[6]
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.