From Wikipedia, the free encyclopedia
Umboðsstjórn Breta í Palestínu[lower-alpha 1][1] var stjórn sem var við lýði frá 1920 til 1948 í Palestínu samkvæmt umboði sem stofnað var til á vettvangi Þjóðabandalagsins.
Palestína | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Höfuðborg | Jerúsalem |
Opinbert tungumál | Enska, arabíska og hebreska |
Stjórnarfar | Umboðsstjórn innan breska heimsveldisins á vegum Þjóðabandalagsins |
Landstjóri | Sir Herbert L. Samuel (1920–1925; fyrstur) Sir Alan Cunningham (1945–1948; síðastur) |
Umboðsstjórn á valdi Bretlands | |
• Bretum veitt umboð | 25. apríl 1920 |
• Bretland tekur formlega við stjórn | 29. september 1923 |
• Sjálfstæðisyfirlýsing Ísraels | 14. maí 1948 |
Flatarmál • Samtals |
25.585,3 km² |
Mannfjöldi • Samtals (1945) • Þéttleiki byggðar |
1.764.520 66,27/km² |
Gjaldmiðill | Egypskt pund (til 1927) Palestínskt pund (frá 1927) |
Í fyrri heimsstyrjöldinni (1914–1918) missti Tyrkjaveldi stjórn í Botnalöndum vegna uppreisnar Araba og innrásarhers Breta.[2] Í Hussein–McMahon-samskiptunum hafði Bretland lofað að viðurkenna stofnun sjálfstæðs Arabaríkis ef Arabar gerðu uppreisn gegn Tyrkjum en eftir styrjöldina skiptu Bretland og Frakkland landsvæðinu á milli sín með Sykes–Picot-samkomulaginu, sem Arabar litu á sem svikráð.
Í Balfour-yfirlýsingunni árið 1917 höfðu Bretar jafnframt lofað að styðja stofnun „heimalands Gyðinga“ í Palestínu. Í lok stríðsins stofnuðu Bretar og Frakkar sameiginlega hernámsstjórn þar sem áður hafði verið landsvæðið Sýrland innan Tyrkjaveldis. Bretar sköpuðu lagagrundvöll fyrir stjórn sinni í Palestínu þegar þeir hlutu umboð til að fara með stjórn svæðisins frá Þjóðabandalaginu í júní árið 1922. Þjóðabandalagið hafði komið á fót kerfi umboðsstjórna með það að markmiði að stýra landsvæðum hins sáluga Tyrkjaveldis „þar til þau gætu staðið á eigin fótum“.[3]
Á tíma umboðsstjórnarinnar fluttu margir Gyðingar til Palestínu og þjóðernishreyfingar færðust í vöxt bæði meðal Gyðinga og Araba á svæðinu. Hagsmunaárekstrar milli fólkshópanna leiddu til uppreisnar Araba í Palestínu árin 1936–1939 og uppreisnar Gyðinga árin 1944–1948. Í nóvember árið 1947 samþykktu Sameinuðu þjóðirnar áætlun um að skipta landsvæðinu í tvö ríki, eitt fyrir Araba og annað fyrir Gyðinga. Palestínustríðið 1947–1949 leiddi hins vegar til þess að landsvæði umboðsstjórnarinnar var skipt á milli Ísraelsríkis, Jórdaníu, sem innlimaði Vesturbakka Jórdan, og Egyptalands, sem stofnaði palestínskt verndarsvæði á Gasaströndinni.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.