Anchorage

borg og sveitarfélag í Alaska í Bandaríkjunum From Wikipedia, the free encyclopedia

Anchoragemap
Remove ads

Anchorage (eða Dgheyaytnu á athabaskísku; máli frumbyggja) er stærsta borg Alaskafylkis Bandaríkjanna með um 290.000 íbúa (2020) og er hluti af samnefndu sveitarfélagi.[1] Hún er staðsett á láglendi í miðju Suður-Alaska fyrir botni Cook Inlet-flóa. Um 40% íbúa fylkisins búa í borginni. Um 400.000 manns búa á stórborgarsvæði Anchorage.

Staðreyndir strax Land, Fylki ...
Thumb
Mynd af Anchorage úr geimnum
Thumb
Árið 1964 varð gríðarmikill jarðskjálfti nálægt Anchorage.

Árið 1964 skók jarðskjálfti upp á 9,2 stig borgina en upptökin voru suður af borginni. Uppbygging var mikil á áttunda áratugnum þegar þangað flykktust olíuleitar- og verktakafyrirtæki og íbúatalan þrefaldaðist á 10 árum. [2] Hugmyndir hafa verið uppi að gera borgina að höfuðstað fylkisins en Juneau í Suðaustur-Alaska hefur verið höfuðstaðurinn síðan árið 1906. Lestarsamgöngur eru norður og suður frá Anchorage; norður að borginni Fairbanks sem er í miðhluta fylkisins og suður að Seward á Kenaiskaga.

Ted Stevens alþjóðaflugvöllurinn er í suðvesturhluta borgarinnar. Villt dýr eins og birnir og elgir koma reglulega inn fyrir borgina.

Remove ads

Tilvísanir

Tenglar

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads