Björk Guðmundsdóttir

íslensk söngkona From Wikipedia, the free encyclopedia

Björk Guðmundsdóttir
Remove ads

Björk Guðmundsdóttir (f. 21. nóvember 1965), best þekkt sem Björk, er íslensk tónlistarkona sem hefur náð alþjóðlegri hylli. Hún hóf tónlistarferil sinn með píanónámi þegar hún var ellefu ára. Ári síðar, eða 1977, kom út platan Björk þar sem hún söng meðal annars þekkt íslensk barnalög. Stuttu síðar fór pönktónlist að hafa áhrif á hana en einnig djasstónlist.

Staðreyndir strax Fædd, Störf ...
Thumb
Björk (2001)

Snemma á ferli sínum var hún í nokkrum pönk- og djass-fusion hljómsveitum. Árið 1983 stofnaði hún ásamt fimm öðrum hljómsveitina KUKL, sem síðan þróaðist út í hljómsveitina Sykurmolarnir. Með þeirri hljómsveit hlaut Björk fyrst heimsfrægð. Þegar Sykurmolarnir hættu árið 1992 hóf hún sólóferil og hefur á honum gefið út 10 plötur, þar af 3 safndiska og einn með tónlistinni við kvikmynd Lars von Triers, Myrkradansarinn, en hún bæði lék aðalhlutverkið og samdi tónlistina við myndina. Björk var tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir lagið „I've Seen It All“ úr Myrkradansaranum árið 2000.

Björk hefur hlotið ýmis verðlaun fyrir tónlist sína, meðal annars Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs árið 1997 og nokkrar tilnefningar til Grammy-verðlauna.

Björk lét húðflúra galdrastafinn Vegvísi á vinstri handlegg sinn.

Foreldrar Bjarkar eru Guðmundur Gunnarsson (f. 1945) fyrrverandi formaður RSÍ og Hildur Rúna Hauksdóttir (1946–2018) hómopati og náttúruverndarsinni.

Remove ads

Plötur

Tappi Tíkarrass

KUKL

  • Söngull (1983)
  • Satt 3 (1984)
  • The Eye (1984)
  • KUKL í Paris 18.9.84 (1984)
  • Holidays In Europe (The Naughty Nought) (1986)

Sykurmolarnir

  • Life's Too Good (1988)
  • Here Today, Tomorrow, Next Week! (1989)
  • Stick Around For Joy (1992)
  • It's-It (1992) (endurhljóðblandanir)

Annað með Sykurmolunum

  • Sugarcubes Interview Disc (1988)
  • The Great Crossover Potential (1998) (greatest hits)

Björk

  • Debut (1993)
  • Post (1995)
  • Homogenic (1997)
  • Vespertine (2001)
  • Medúlla (2004)
  • Volta (2007)
  • Biophilia (2011)
  • Vulnicura (2015)
  • Utopia (2017)
  • Fossora (2022)

Annað

Ásamt öðrum

  • „Ooops“ (með 808 State) (1988)
  • „Qmart“ (með 808 State) (1988)
  • „Play Dead“ (titillagið úr myndinni The Young Americans) (með David Arnold) (1993)
  • „My Spine“ (með Evelyn Glennie) (1996)
  • „Oxygen“ (með Evelyn Glennie) (1996)
  • „Lilith“ (með Plaid) (1997)
  • „I've Seen It All“ (með Thom Yorke) (2000)
  • „Submarine“ (með Robert Wyatt) (2004)
Remove ads

Kvikmyndir

Tengt efni

Tilvísanir

Tenglar

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads