Björt framtíð

Íslenskur stjórnmálaflokkur From Wikipedia, the free encyclopedia

Remove ads

Björt framtíð var íslenskur stjórnmálaflokkur sem var stofnaður árið 2012. Að stofnun flokksins komu Guðmundur Steingrímsson, sem áður hafði verið í Samfylkingunni og Framsóknarflokknum og Heiða Kristín Helgadóttir, sem hefur komið að Besta flokknum.[1] Listabókstafur Bjartrar framtíðar var A.[2] Flokkurinn var með sæti á þingi frá 2013 til 2017 en missti alla sína þingmenn í alþingiskosningum 2017. Flokkurinn fékk einnig fulltrúa kjörna í sjö sveitarfélögum í sveitarstjórnarkosningunum 2014. Í sveitastjórnarkosningunum árið 2018 bauð Björt framtíð aðeins fram í Kópavogi í samstarfi með Viðreisn. Ekkert starf hefur farið fram í flokknum síðan 2019 og var listabókstafur flokksins lagður niður árið 2021.

Staðreyndir strax Björt framtíð ...
Remove ads

Stofnun

Björt framtíð bauð í fyrsta skipti fram í Alþingiskosningunum 2013 og fékk 8,2% og 6 þingmenn en þá var Guðmundur Steingrímsson formaður. Veturinn 2013 sameinaðist Besti flokkurinn Bjartri framtíð. Guðmundur hætti sem formaður árið 2015, meðal annars vegna slæms gengis í skoðanakönnunum.[3] Óttar Proppé var sjálfkjörinn formaður flokksins í september 2015.[4] Brynhildur S. Björnsdóttir var sömuleiðis kjörin stjórnarformaður Bjartrar framtíðar í september 2015.[5]

Remove ads

Ríkisstjórnarsamstarf

Í alþingiskosningum 2016 hlaut Björt framtíð 7,2% atkvæða og fékk fjóra menn kjörna. Björt framtíð myndaði ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokkinum og Viðreisn í janúar 2017.[6] Í september sama ár ákvað Björt framtíð að slíta ríkisstjórnarsamstarfinu þar sem þau töldu Bjarna Benediktsson, þáverandi forsætisráðherra, hafa gerst sekan um trúnaðarbrest þegar hann upplýsti ríkisstjórnina ekki um bréf sem faðir hans hafði skrifað og varðaði uppreisn æru dæmds barnaníðings.[7][8] Í kjölfarið var þing rofið og kosið á ný í október 2017. Björt framtíð hlaut 1,2% greiddra atkvæða í kosningunum og féll af þingi. Óttarr Proppé hætti sem formaður flokksins þremur dögum eftir kosningarnar[9] og Björt Ólafsdóttir tók við formennsku í flokknum í nóvember.[10]

Remove ads

Endalok

Theodóra Sigurlaug Þorsteinsdóttir tók síðar við formennskunskunni árið 2018.[11] Flokkurinn bauð ekki fram neina lista í sveitarstjórnarkosningum 2018 nema í Kópavogi þegar að þau voru með Viðreisn í einn sameinaðan lista, sem að hét BF-Viðreisn, en listinn bauð einungis fram undir merkjum Viðreisnar í sveitarstjórnarkosningunum 2022. Árið 2019 lýsti Theodóra Sigurlaug, formaður flokksins yfir því að það væru uppi hugmyndir um að flokkurinn myndi sameinast Viðreisn, en það hefur ekki ennþá gerst.[11] Flokkurinn bauð ekki fram neina lista í þingkosningunum 2021 eða 2024. Listabókstafur flokksins var lagður niður 2021 og flokkurinn er ekki skráður á lista Ríkisskattstjóra yfir starfandi stjórnmálasamtök.[12] Félagið að baki flokknum hefur ekki verið formlega afskráð en síðasti ársreikningur sem það skilaði inn var fyrir árið 2017.[13]

Formenn

Nánari upplýsingar Formaður, Kjörinn ...

Varaformenn

Nánari upplýsingar Varaformaður, Kjörinn ...
Remove ads

Tilvísanir

Tenglar

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads