Colbie Caillat

From Wikipedia, the free encyclopedia

Colbie Caillat
Remove ads

Colbie Marie Caillat (f. 28. maí 1985) er bandarísk popp- og kántrísöngkona, lagahöfundur og gítarleikari frá Malibu, Kaliforníu. Hún gaf út sína fyrstu plötu árið 2007, Coco, sem innihélt smellina „Bubbly“, „Realize“ og „The Little Things“. Árið 2008 söng hún dúett með Jason Mraz, „Lucky“, og vann lagið Grammy-verðlaun. Caillat gaf út sína aðra plötu, Breakthrough, í ágúst 2009.

Staðreyndir strax Fædd, Önnur nöfn ...

Þann 2. desember 2009 var Breakthrough tilnefnd sem besta popp-platan á 52. Grammy-verðlaununum. Hún var einnig tilnefnd tvisvar fyrir besta popp-samstarfið, fyrir að hafa sungið „Lucky“ með Jason Mraz og fyrir að hafa sungið bakraddir og skrifað lag Taylor Swift, „Breathe“, og var hún í hópnum sem vann „plötu ársins“ fyrir bakraddasöng sinn og hafa samið lög fyrir plötu Taylor Swift Fearless.

Remove ads

Ævi

Caillat fæddist í Newbury Park í Kaliforníu en ólst upp á Malibu í sama fylki. Faðir hennar, Ken Caillat, var plötuframleiðandi. Framleiðandinn Mikal Blue réð hina ungu Caillat til að syngja bakraddir í teknólögum sem átti að nota á tískusýningum. Caillat byrjaði að skrifa lög með Blue árið 2004.

Útgefið efni

Breiðskífur

  • Coco (2007)
  • Breakthrough (2009)
  • All of You (2011)
  • Christmas in the Sand (2012)
  • Gypsy Heart (2014)
  • The Malibu Sessions (2016)
  • Along the Way (2023)

Tilvísanir

Heimildir

Tenglar

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads