Douglas MacArthur

Bandarískur hershöfðingi (1880–1964) From Wikipedia, the free encyclopedia

Douglas MacArthur
Remove ads

Douglas MacArthur (26. janúar 18805. apríl 1964) var bandarískur fimmstjörnuhershöfðingi og marskálkur Filippseyjahersins. Hann var herráðsformaður Bandaríkjahers á fjórða áratugnum og lék lykilhlutverk á Kyrrahafsvígstöðvunum í seinni heimsstyrjöldinni. Hann var sæmdur heiðursorðu (Medal of Honor) fyrir þjónustu sína í Filippseyjaherförinni, og urðu þeir faðir hans, Arthur MacArthur yngri, þá fyrstu feðgarnir sem báðir höfðu verið sæmdir orðunni.

Staðreyndir strax Fæddur, Dáinn ...
Remove ads

Æviágrip

MacArthur fæddist inn í herfjölskyldu í bandaríska vestrinu og útskrifaðist með sóma úr hernaðarskóla Vestur-Texas og úr bandaríska hernaðarháskólanum West Point árið 1903, með hæstu einkunn í sínum bekk. Þegar Bandaríkin hertóku Veracruz árið 1914 fór MacArthur fyrir könnunarleiðangri og fékk fyrir það tilnefningu til heiðursorðunnar. Árið 1917 var hann hækkaður úr majórstign í ofurstatign og varð yfirforingi 42. fótgöngudeildarinnar. Í bardögum á vesturvígstöðvunum í fyrri heimsstyrjöldinni var hann gerður fylkishershöfðingi og aftur tilnefndur til heiðursorðunnar.

Frá 1919 til 1922 var MacArthur yfirmaður í bandaríska hernaðarháskólanum West Point, þar sem hann fór fyrir fjölda umbóta. Næsta verkefni hans var á Filippseyjum, þar sem hann tók árið 1924 þátt í því að kveða niður uppreisn filippeyskra herskáta. Árið 1925 varð MacArthur yngsti majór-hershöfðingi Bandaríkjahersins. Hann var árið 1928 forseti bandarísku Ólympíunefndarinnar á Sumarólympíuleikunum í Amsterdam. Árið 1930 varð hann herráðsformaður Bandaríkjahers og gegndi þeirri stöðu til 1937, en þá dró hann sig úr hernum og varð hernaðarráðgjafi ríkisstjórnar Filippseyja.

MacArthur var kallaður til herstarfa á ný árið 1941 og gerður foringi austurlandahers Bandaríkjanna í stríðinu við japanska keisaradæmið. Í fyrstu var stríðið reiðarslag fyrir Bandaríkjamenn: Herflugvélum landsins var gereytt þann 8. desember 1941 og Japanir gerðu í kjölfarið innrás í Filippseyjar. Herlið MacArthur neyddust fljótt til að hörfa til Bataan, þar sem þau þraukuðu fram í maí 1942. Í mars 1942 tókst MacArthur og fjölskyldu hans að flýja til Ástralíu, þar sem MacArthur varð yfirherforingi Suðvestur-Kyrrahafsvígstöðvanna. Þegar MacArthur kom til Ástralíu hélt hann fræga ræðu fyrir Filippseyinga og lofaði þeim: „Ég mun snúa aftur.“ Honum tókst að uppfylla það loforð eftir tveggja ára átök á Kyrrahafi. MacArthur var sæmdur heiðursorðunni fyrir vörn sína á Filippseyjum. Hann samþykkti uppgjöf Japans þann 2. september 1945 um borð í herskipinu USS Missouri í Tókýóflóa og fór fyrir hernámi Bandaríkjamanna í Japan frá 1945 til 1951. Á þeim tíma réð hann í reynd yfir Japan og stóð fyrir stórtækum efnahags-, stjórnmála- og samfélagsbreytingum.

MacArthur stýrði her Sameinuðu þjóðanna í Kóreustríðinu, sem braust út árið 1950. Í Kóreustríðinu lenti MacArthur í ágreiningi við Harry S. Truman Bandaríkjaforseta. MacArthur talaði máli Repúblikana, sem vildu reka stríðið af meiri hörku og gáfu skyn að stjórn Trumans hefði sofnað á verðinum með því að leyfa kommúnistum að komast til valda í Kína við lok kínversku borgarastyrjaldarinnar. Eftir að kommúnistastjórn Kína greip inn í styrjöldina vildi MacArthur þiggja hernaðaraðstoð kínverskra þjóðernissinna og gera kjarnorkuárásir á vígi kínverskra kommúnista meðfram landamærum Mansjúríu.[1] Truman óttaðist að með slíkum aðgerðum myndi ný heimsstyrjöld brjótast út og því heimilaði hann þær ekki. Þegar MacArthur fór að gagnrýna Truman opinberlega endaði Truman á því að reka MacArthur fyrir óhlýðni og fyrir að sýna forsetaembættinu vanvirðingu.[2]

MacArthur varð seinna forstjóri ritvélaframleiðslunnar Remington Rand.

Remove ads

Heimild

Tenglar

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads