Kolefnisflokkur

frumefni í flokki 14 From Wikipedia, the free encyclopedia

Remove ads

Kolefnisflokkur er flokkur númer 14 í lotukerfinu og inniheldur frumefnin kolefni, kísil, german, tin, blý og fleróvín. Hvert þessara efna hefur fjórar gildisrafeindir á ysta rafeindahveli. Í flestum tilvikum hneigjast þau því til að deila rafeindunum en tilhneiging til að missa gildisrafeindirnar eykst með hækkandi sætistölu. Einungis kolefni myndar neikvæðar karbíðjónir C-4. Kísill og german eru bæði málmungar og geta myndað jákvætt hlaðnar jónir Si+4 og Ge+4. Tin og blý eru málmar sem geta báðir myndað +2-jónir, en fleróvín er tilbúið skammlíft geislavirkt efni.

Nánari upplýsingar Flokkur →, ↓ Lota ...

Fyrir utan german koma öll þessi efni fyrir bæði í hreinu formi og í efnasamböndum. Kolefni myndar mikinn fjölda ólíkra efnasambanda í lífríkinu og kísill er annað algengasta efnið í jarðskorpunni á eftir súrefni.

Remove ads
Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads