Eva LaRue

From Wikipedia, the free encyclopedia

Eva LaRue
Remove ads

Eva Maria LaRue (fædd Eva Maria LaRuy; 27. desember 1966) er bandarísk leikkona og fyrirsæta. Hún er þekktust fyrir hlutverk sín í All My Children og CSI: Miami.

Staðreyndir strax Upplýsingar, Fædd ...
Remove ads

Einkalíf

LaRue fæddist í Long Beach í Kaliforníu og er af púertó rískum, frönskum, þýskum og skoskum uppruna. Hún er meðlimur Bahá'í trúarinnar.[1]

LaRue byrjaði að leika þegar hún var sex ára og var seinna meir táningsfegurðardrottning. Vann hún Danfranc Productions ungfrú Kalifornía Empire 1984 titillinn sem var haldin í Irvine í Kaliforníu. Síðan var hún Frederick's of Hollywood fyrirsæta.

Frá 1992-1994 var LaRue gift John O'Hurley. Síðan byrjaði hún samband með meðleikara sínum John Callahan úr All My Children en hann lék eiginmann hennar Edmund Grey í þættinum. Saman eiga þau eina dóttur, Kaya McKenna Callahan. Skildu þau árið 2005.

Í ágúst 2006 var greint frá því að systir hennar, Nika, var ein af þeim konum sem voru ljósmyndaðar af raðmorðingjanum William Richard Bradford fyrir safnið sitt. Var hún nr. 3 (af 54 konum) á plakati gefið út af Los Angeles lögreglunni til þess að finna lifandi ættingja. Bradford tók ljósmyndir af konum sem hann hitti á börum undir því yfirskyni að hann myndi hjálpa þeim með fyrirsætu feril þeirra. Þetta var notað sem söguþráður í CSI: Miami þætti eftir að lýst var frá þessu.[2]

Árið 2008 var tilkynnt að Eva væri trúlofuð viðskiptamanninum Joe Cappuccio, eigandi sjávarútflutnings fyrirtækis, sem hún kynntist gegnum vin haustið 2008. LaRue og Cappuccio ætluðu að gifta sig í Mexíkó í júní 2009[3] en urðu að fresta því vegna skuldingar að hálfu kærasta hennar.[4] LaRue er skyld Jane Fonda.[5] Hún er guðmóðir sonar Kelly Ripa og Mark Consuelos. Sarah Michelle Gellar er guðmóðir dóttur hennar Kaya.

Remove ads

Ferill

Frá 1993 til 1997 og aftur frá 2002 til 2005 lék LaRue Dr. Maria Santos Grey í All My Children.[6] Þar var hún hluti af All My Children ofurparinu Edmund og Maria. Fékk hún tilnefningu til Daytime Emmy-verðlauna í flokknum „Besta aukaleikkona í dramaseríu“ fyrir All My Children. Einnig fékk hún tilnefningu árið 2004 í flokknum „Besta lagið“ fyrir að hafa samið „Dance Again with You“, sem var notað í bakgrunninum í ástarsenu þegar persónurnar Edmund og Maria gifta sig í þriðja skipti.

LaRue endurtók hlutverk sitt sem Maria stuttlega þann 5. janúar 2010 vegna 40 ára afmælis All My Children'.[7]

LaRue lék persónuna Natalia Boa Vista í CSI: Miami frá 2005-2012.

Remove ads

Kvikmyndir og sjónvarp

Nánari upplýsingar Kvikmyndir, Ár ...
Remove ads

Verðlaun og tilnefningar

ALMA-verðlaunin

  • 2006: Verðlaun fyrir hlutverk sitt í dag-dramaseríunni All My Children.
  • 1998: Verðlaun sem besta leikkona í sápuóperu fyrir All My Children.
  • 1998: Tilnefnd sem besta leikkona í grínseríu fyrir Head Over Heels.

Daytime Emmy-verðlaunin

  • 2004: Tilnefnd fyrir besta lagið í All My Children ásamt Clay Ostwald og Jorge Casas.
  • 1997: Tilnefnd sem besta leikkona í aukahlutverki fyrir All My Children.

Gracie Allen-verðlaunin

  • 2004: Verðlaun sem besta leikkona í dag-dramaseríu fyrir All My Children.

Image-verðlaunin

  • 2003: Tilnefnd sem besta leikkona í dag-dramaseríu fyrir All My Children.

Imagen Foundation-verðlaunin

  • 2011: Tilnefnd sem besta leikkona í aukahlutverki fyrir CSI: Miami.
  • 2009: Tilnefnd sem besta leikkona í aukahlutverki fyrir CSI: Miami.
  • 2007: Tilnefnd sem besta leikkona í aukahlutverki fyrir CSI: Miami.
  • 2006: Tilnefnd sem besta leikkona í aukahlutverki fyrir CSI: Miami.

Soap Opera Digest-verðlaunin

  • 2003: Tilnefnd fyrir bestu endurkomu fyrir All My Children.
  • 1997: Tilnefnd sem heitasta kvenstjarnan fyrir All My Children.
  • 1996: Tilnefnd sem besta leikkona í aukahlutverki fyrir All My Children.
  • 1994: Tilnefnd sem nýja kvenstjarnan fyrir All My Children.
Remove ads

Heimildir

Tenglar

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads