Ertublómaætt
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Ertublómaætt (latína: Fabaceae) eða belgjurtaætt er ætt blómplantna sem inniheldur belgjurtir. Ættin inniheldur tré, runna, fjölærar- og einærar jurtkenndar plöntur. Auðvelt er bera kennsl á plöntu af ertublómaætt á aldinum þeirra sem eru belgir.
Ertublómaætt er þriðja stærsta ætt plantna í fjöldi tegunda á eftir brönugrasaætt (Orchidaceae) og körfublómaætt (Asteraceae), með 751 ættkvísl og um 19.000 tegundir.[1][2]
Í ertublómaætt er að finna tegundir sem mikið eru notaðar í landbúnaði og sem matvæli fyrir menn, þar á meðal sojabaunir, belgbaunir, ertur, kjúklingabaunir, alfalfa, jarðhnetur og lakkrís.
Í ættinni er einnig að finna plöntur sem eru skaðvaldar víðsvegar um heiminn, til dæmis gullsóp (Cytisus scoparius), fuglabelgtré (Robinia Pseudoacacia), hvinviður (Ulex europaeus), kúsú (Pueraria montana) og lúpínutegundir, meðal annars alaskalúpína (Lupinus nootkanensis) sem hefur orðið ágeng á Íslandi.
Remove ads
Tilvísanir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads