C (forritunarmál)
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Forritunarmálið C eða bara C er forritunarmál sem var þróað af Ken Thompson og Dennis Ritchie á áttunda áratugnum til notkunar á UNIX stýrikerfinu. Í dag er það notað á nær öllum stýrikerfum í heimi og var vinsælasta forritunarmálið til kerfisforritunar, einnig hafa verið gerðir þýðendur fyrir hina ýmsu örgjörva. C++, sem er útvíkkuð útgáfa af C og styður hlutbundna forritun, hefur nú tekið við af C á flestum sviðum.
Remove ads
C fylgir engum einum staðli, en nokkrir staðlar eru til sem að menn geta kosið að fylgja, ef þeir kjósa svo. Vinsælustu staðlarnir eru voru fyrst K&R sem eins og nafnið gefur til kynna var það sem Ken og Dennis notuðu í byrjun, seinna voru fleiri staðlar búnir til, t.d. ANSI C ISO C (ISO 9899:1989), C99 (ISO 9899:1999) og sá nýjasti C23. Á Íslandi er í gildi íslenskur staðall ÍST ISO 9899:1992 um forritunarmálið C, en sá staðall er mjög lítið viðurkenndur meðal forritara.
C er mjög nálægt vélbúnaðinum, sem þýðir að C kóði hefur mjög litla falda virkni, og flestar skipanir þýðast beint yfir í smalamál með litlum breytingum. Einnig hefur C nánast ótakmarkaðann aðgang að minni tölvunnar. Þetta gerir C að öflugu forritunarmáli en jafnframt erfitt í viðhaldi og villuleit.
Remove ads
halló, heimur í C
Forritið að neðan þýðist þó þýðandinn gæti varað notandann við ef þýtt sem ANSI C-forrit:
main()
{
printf("Halló, heimur!\n");
}
hægt er að koma í veg fyrir þær með því að skrifa það með stöðluðum C-kóða:
#include <stdio.h>
int main(void)
{
printf("Halló, heimur!\n");
return 0;
}
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads