Fyrsta ráðuneyti Bjarna Benediktssonar

From Wikipedia, the free encyclopedia

Remove ads

Fyrsta ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar tók við völdum þann 11. janúar 2017. Hún samanstóð af Sjálfstæðisflokknum, Viðreisn og Bjartri framtíð og var því fyrsta samsteypustjórn fleiri en tveggja flokka síðan þriðja ráðuneyti Steingríms Hemannssonar, sem hélt velli frá hausti 1989 til kosninga vorið 1991. Í ríkisstjórninni voru 11 ráðherrar og því einum fleiri en voru í stjórninni sem hún tók við af. En eftir að ljóst varð að ríkisstjórnin yrði mynduð sóttist Sjálfstæðisflokkurinn eftir því að skipta Innanríkisráðuneytinu milli tveggja ráðherra til að ann­ars veg­ar annast málefni samgöngu- og sveit­ar­stjórna­ og hins veg­ar dóms­mál.[1]

Aðrar breytingar á ráðherraembættum voru annars vegar þær að iðnaðar- og viðskiptaráðherra varð að ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og að félags- og húsnæðismálaráðherra varð að félags- og jafnréttismálaráðherra. Sjálfstæðisflokkurinn hefur sex ráðherra, Viðreisn þrjá og Björt framtíð tvo. Ríkisstjórnarflokkarnir hafa milli sín naumasta mögulega meirihluta á Alþingi með 32 þingmenn.

Ráðuneyti Bjarna hrundi þegar Björt framtíð dró sig úr stjórnarsamstarfinu í september sama ár eftir að upplýst var um að fyrri ríkisstjórn hefði veitt dæmdum barnaníðingi, Hjalta Sigurjóni Haukssyni, uppreist æru samkvæmt meðmælum frá föður Bjarna, Benedikt Sveinssyni.[2] Bjarni hafði vitað frá því í júlí sama ár að faðir hans væri meðal umsagnaraðila Hjalta.[3] Meðlimir Bjartrar framtíðar kölluðu málið „alvarlegan trúnaðarbrest“ innan ríkisstjórnarinnar.[4]

Remove ads

Ráðherraskipan 11. janúar 2017 fram að 30. apríl 2017[5]

Remove ads

Ráðherraskipan frá 1. maí 2017[6]

Remove ads

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads