Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir

íslenskur stjórnmálamaður From Wikipedia, the free encyclopedia

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Remove ads

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (f. 4. október 1965) er íslensk stjórnmálakona sem hefur verið utanríkisráðherra frá 2024 og formaður Viðreisnar frá 2017. Hún var landbúnaðar- og sjávarútvegisráðherra árið 2017 og menntamálaráðherra frá 2003 til 2009. Hún var varaformaður Sjálfstæðisflokksins frá 2005 til 2010. Hún hefur setið á Alþingi fyrir Viðreisn frá 2016 í Suðvesturkjördæmi, en þar áður sat hún á þingi frá 1999 til 2013 fyrir Sjálfstæðisflokkinn, fyrst í Reykjaneskjördæmi frá 1999 til 2003 en 2003 til 2013 í Suðvesturkjördæmi. Hún er fyrrum forstöðumaður mennta- og nýsköpunarsviðs Samtaka atvinnulífsins

Staðreyndir strax (ÞKG), Utanríkisráðherra Íslands ...
Remove ads

Fjölskylda, menntun og fyrri störf

Þorgerður er dóttir Gunnars H. Eyjólfssonar, leikara, og Katrínar Arason deildarstjóra hjá Flugmálastjórn. Þorgerður lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Sund árið 1985. Þar var hún Ármaður skólafélagsins á lokaári sínu, önnur kvenna til að vera kjörin sem ármaður í MS. Hún lauk lögfræðinámi frá Háskóla Íslands 1993. Þorgerður starfaði sem lögmaður í eitt ár og sem yfirmaður samfélags- og dægurmáladeildar Ríkisútvarpsins 1997-1999.

Hún er gift Kristjáni Arasyni, viðskiptafræðingi og fyrrum handboltakappa og eiga þau saman þrjú börn.

Remove ads

Stjórnmál

Þorgerður sat á Alþingi á árunum 1999-2013, fyrst fyrir Reykjaneskjördæmi en fyrir Suðvesturkjördæmi frá 2003. Hún var menntamálaráðherra á árunum 2003-2009 og var varaformaður Sjálfstæðisflokksins á árunum 2005-2010. Árið 2016 fór hún aftur á þing fyrir Viðreisn og hefur verið endurkjörin á þing fyrir síðan. Hefur hún verið formaður flokksins frá árinu 2017. Þorgerður Katrín var starfsaldursforseti Alþingis og stýrði fundum þess að loknum alþingiskosningunum 2021, þar sem deilt var um afgreiðslu kjörbréfa að lokinni umdeildri talningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi.

Remove ads

Umfjöllun í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis

Í 2. bindi skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um fall íslenska bankakerfisins, er fjallað um þá stjórnmálamenn og maka þeirra sem höfðu heildarlánastöðu sem var hærri en 100 milljónir króna. Nafn Þorgerðar Katrínar og eiginmanns hennar er þar ofarlega á blaði en heildarlán hennar og eiginmanns hennar námu nærri 1700 milljónum króna. Þorgerður Katrín sagði af sér sem varaformaður Sjálfstæðisflokksins og tók sér tímabundið hlé frá þingstörfum þann 17. apríl 2010. Hún tók aftur sæti á Alþingi þann 13. september 2010 og sat á þingi út kjörtímabilið.

Tenglar


Fyrirrennari:
Tómas Ingi Olrich
Menntamálaráðherra
(31. desember 20031. febrúar 2009)
Eftirmaður:
Katrín Jakobsdóttir
Fyrirrennari:
Geir H. Haarde
Varaformaður Sjálfstæðisflokksins
(15. október 200517. apríl 2010)
Eftirmaður:
Ólöf Nordal
Fyrirrennari:
Gunnar Bragi Sveinsson
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
(11. janúar 201730. nóvember 2017)
Eftirmaður:
Kristján Þór Júlíusson
Fyrirrennari:
Benedikt Jóhannesson
Formaður Viðreisnar
(2017 –)
Eftirmaður:
Enn í embætti
Fyrirrennari:
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir
Utanríkisráðherra
(21. desember 2024 –)
Eftirmaður:
Enn í embætti


Remove ads
Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads