Þjóðvegur 40

From Wikipedia, the free encyclopedia

Remove ads

Þjóðvegur 40 eða Hafnarfjarðarvegur er 9,4 kílómetra langur vegur á höfuðborgarsvæðinu. Hann liggur frá Sæbraut, í gegnum Kópavog og Garðabæ til Reykjanesbrautar við Kaplakrika.

Vegurinn er ein af helstu aðalbrautunum á Höfuðborgarsvæðinu. Innan Reykjavíkur heitir vegurinn Kringlumýrarbraut, og við Miklubraut (49) eru einhver fjölförnustu gatnamót landsins. Helstu gatnamótum er stýrt með umferðarljósum frá Sæbraut og að Listabraut. Þaðan og alla leið að Vífilsstaðavegi í Garðabæ eru að- og fráreinar við öll gatnamót, þ.m.t. í Kópavogi. Frá Vífilsstaðavegi er gatnamótum stýrt með ljósum á ný.

Vegurinn er 4 akreinar á flestum stöðum. Kringlumýrarbraut er þó 6 akreinar frá Miklubraut og inn í Kópavog. Þegar komið er að gatnamótunum í Engidal hjá Hafnarfirði, beygir vegurinn út af aðalbrautinni. Aðalvegurinn heitir eftir það Reykjavíkurvegur, en þjóðvegur 40 liggur um Fjarðarhraun sem er aðeins 2 akreinar. Við Kaplakrika kemur Reykjanesbraut (41) inn á veginn og endar þjóðvegur 40 þar.

Remove ads

Leiðarlýsing

Vegurinn liggur um Reykjavík (heitir þar Kringlumýrarbraut), Kópavog, Garðabæ og Hafnarfjörð (heitir þar Fjarðarhraun).

Reykjavík

Kjósarsýsla

  • Þéttbýli: Kópavogur.
  • Mislæg vegamót tvær akbrautir : Nýbýlavegur: Austurbær Kópavogs (liggur í átt að 413) / Kársnesbraut: Vesturbær Kópavogs.
  • Mislæg vegamót tvær akbrautir : Hamraborg: Miðbær Kópavogs (aðeins á leið til Hafnarfjarðar).
  • Jarðgöng: Yfirbyggður stokkur yfir Kópavogsgjá.
  • Mislæg vegamót tvær akbrautir : Digranesvegur: Miðbær og austurbær Kópavogs / Borgarholtsbraut: Vesturbær Kópavogs. (Aðeins á leið til Reykjavíkur).
  • Kópavogslækur
  • Þéttbýli endar: Kópavogur.
  • Þéttbýli: Garðabær.
  • Mislæg vegamót tvær akbrautir : Arnarnesvegur: Til austurs: 411 Smárahverfi / norðanverður Garðabær. / Til vesturs: Arnarnes.
  • Arnarneslækur.
  • Litlatún: Túnahverfi. (Aðeins á leið til Reykjavíkur).
  • Ljósastýrð gatnamót: Vífilsstaðavegur: Til austurs: Miðbær Garðabæjar. / Til vesturs: Sjálandshverfi
  • Hraunsholtslækur.
  • Ljósastýrð gatnamót: Lyngás: Ásahverfi. / Lækjarfit: Fitjahverfi.
  • Ljósastýrð gatnamót: Engidalur: Reykjavíkurvegur: Hafnarfjörður. / Álftanesvegur: Álftanes. 40 víkur fyrir Reykjavíkurvegi Vegur beygir til vinstri.
  • Fjarðarhraun hefst hér.
  • Þéttbýli endar: Garðabær.
  • Þéttbýli: Hafnarfjörður.
  • Ljósastýrð gatnamót: Hólshraun: Kaplakriki/Bæjarhraun/Fjarðarkaup
  • Tvöfaldur vegur endar: Tvöfaldur vegur endar hér.
  • Stakkahraun: Norðurbær Hafnarfjarðar.
  • Ljósastýrð gatnamót: Hjallahraun: Norðurbær Hafnarfjarðar.
  • 2+2 vegur Vegurinn er 4 akreinar frá Hjallahrauni að Reykjanesbraut.
  • Hringtorg: Flatahraun: Til vesturs: Miðbær og norðurbær Hafnarfjarðar. / Til austurs: Kaplakriki. / Bæjarhraun.
  • Ljósastýrð gatnamót: Reykjanesbraut: 41: Til austurs: Austurborg Reykjavíkur / Smárinn / Vífilsstaðir / o.fl. / Til suðurs: Keflavík / Suðurbær Hafnarfjarðar.
  • Fjarðarhraun endar hér.
  • Endapunktur: Gatnamót Reykjanesbrautar og Fjarðarhrauns við Kaplakrika.
  Þessi samgöngugrein sem tengist Íslandi er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
Remove ads
Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads