Heilongjiang

hérað í Kína From Wikipedia, the free encyclopedia

Heilongjiang
Remove ads

Heilongjiang (kínverska: 黑龙江; rómönskun: Hēilóngjiāng) er hérað í norðausturhluta Alþýðulýðveldisins Kína. Það er nyrsta og austasta hérað landsins. Það afmarkast í norðri og austri af Rússlandi meðfram Amur fljóti og Ussuri (Wusuli) fljóti, í suðri af kínverska héraðinu Jilin og Innri Mongólíu í vestri. Höfuðborgin og stærsta borg héraðsins er Harbin.

Thumb
Kort af legu Heilongjiang héraðs í norðausturhluta Kína.

Heilongjiang deilir landamærum að Rússneska sambandsríkinu (Amúrfylki, Hinu hebreska sjálfstjórnarfylki gyðinga, Kabarovskfylki, Prímorjafylki og Zabajkalfylki) í norðri og austri.

Héraðið dregur nafn sitt af fljótinu Amur fljóti (á kínversku Heilong Jiang, sem þýðir „Svartdrekafljót“, og markar landamæri Alþýðulýðveldisins Kína og Rússlands. Heilongjiang markar nyrsta punkt Kína (í Mohe-borg) og einnig þeim austasta (á mótum fljótanna Amur og Ussuri).

Heilongjiang nær yfir þrjá fimmtu þess svæðis í norðausturhéruðunum þremur sem áður voru Mansjúría og hefur meira en þriðjung íbúa svæðisins. Héraðið nær yfir 463.600 ferkílómetra. Árið 2010 voru íbúar héraðsins um 38 miljónir.

Heilongjiang hefur umtalsverða landbúnaðarframleiðslu, og hráefnavinnslu, svo sem timbur, olíu og kol.

Remove ads

Myndir

Tenglar

Heimildir


Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads