Manuel Valls
Fransk-spænskur stjórnmálamaður From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Manuel Carlos Valls Galfetti (fæddur 13. ágúst 1962) er fransk-spænskur stjórnmálamaður og fyrrum forsætisráðherra Frakklands. Hann gekk í það embætti þann 31. mars 2014 og gegndi því til ársins 2016. Hann var innanríkisráðherra Frakklands frá 2012 til 2014. Valls var meðlimur í Sósíalistaflokknum en sagði sig úr honum árið 2017.
Hann fæddist í Barselóna, en faðir hans var spænsk-katalónskur og móðir hans svissnesk. Hann var borgarstjóri Évry frá 2001 til 2012, og var kosinn í öldungadeild Franska þingsins í fyrsta skiptið árið 2002. Hann tilheyrði frjálslyndu deild Sósíalistaflokksins, sem er svipuð skandinavískum félagslegum lýðræðisflokkum.
Valls sagði af sér sem forsætisráðherra í desember árið 2016 til þess að geta sóst eftir útnefningu Sósíalistaflokksins sem frambjóðandi í frönsku forsetakosningunum 2017.[1] Í forvali Sósíalistaflokksins tapaði Valls hins vegar fyrir Benoît Hamon.[2] Eftir forsetakosningarnar 2017 sagði Valls sig úr Sósíalistaflokknum og lýsti yfir stuðningi við stjórnmálahreyfingu Emmanuels Macron, nýkjörins forseta Frakklands.[3] Hann lýsti því yfir að Sósíalistaflokkurinn væri dauður í núverandi mynd og sóttist eftir því að bjóða sig fram á þing fyrir flokk Macrons, La République en marche,[4] en hafði ekki erindi sem erfiði.
Í september árið 2018 lýsti Valls því yfir að hann hygðist gefa kost á sér sem borgarstjóri Barselóna.[5] Kosningarnar voru haldnar þann 26. maí 2019, en Valls hlaut aðeins um 12% atkvæða og lenti í fimmta sæti.[6]
Remove ads
Tilvísanir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads