Nirvana (hljómsveit)

From Wikipedia, the free encyclopedia

Nirvana (hljómsveit)
Remove ads

Nirvana var gruggrokk-hljómsveit sem var starfandi á síðari hluta níunda áratugarins fram að miðjum tíunda áratugnum. Hljómsveitin hætti störfum eftir að söngvari og gítarleikari sveitarinnar, Kurt Cobain, lést 5. apríl 1994.

Staðreyndir strax Upplýsingar, Önnur nöfn ...
Remove ads

Saga hljómsveitarinnar

Nirvana var stofnuð árið 1987 í Aberdeen, Washington-fylki. Kurt Cobain kynntist Krist Novoselic í gegnum hljómsveitina Melvins. Áður en þeir stofuðu Nirvana, voru þeir í mörgum hljómsveitum saman. Bleach var heitið á fyrstu breiðskífu sveitarinnar og kom hún út árið 1989. Eftir Bleach kom Nevermind árið 1991, þekktasta skífa þeirra félaga en lagið „Smells like Teen Spirit“ sló í gegn og vakti athygli á fleiri hljómsveitum frá Seattle.

Incesticide, sem var þriðji diskurinn, kom út árið 1992 og eru á þeim disk B-hliða lög. Síðasti diskurinn sem kom út meðan Nirvana var ennþá starfandi, var In Utero, árið 1993. Seinna eftir að Nirvana hætti, komu út nokkrir diskar. MTV Unplugged in New York kom út í nóvember 1994. From the Muddy Banks of the Wishkah kom út 1996, sem eru tökur frá tónleikum á árunum 1989–1994. Einnig komu fleiri safndiskar og tónleikadiskur frá Reading-hátíðinni eftir endalok sveitarinnar.

Dave Grohl stofnaði hljómsveitina Foo Fighters eftir endalok Nirvana.

Remove ads

Hljómsveitarmeðlimir

Lengst af

Styttri tímabil

  • Aaron Burckhard - trommur (1987–1988)
  • Dale Crover - trommur (1987–1988, 1990)
  • Dave Foster - trommur (1988)
  • Chad Channing - trommur (1988–1990)
  • Jason Everman - gítar (1989)
  • Dan Peters - trommur (1990)

Útgefið efni

Breiðskífur

  • Bleach (1989)
  • Nevermind (1991)
  • In Utero (1993)

Aðrar útgáfur

  • Incesticide (B-hliðar) (1992)
  • MTV Unplugged in New York (tónleikaplata) (1994)
  • Singles (1995)
  • From the Muddy Banks of the Wishkah (tónleikaplata) (1996)
  • Nirvana (safnplata) (2002)
  • With the Lights Out (2004)
  • Sliver: The Best of the Box (2005)
  • Live at Reading (tónleikaplata) (2009)

Tenglar

  Þessi tónlistargrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads