Norðurland eystra
landshluti á Íslandi From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Norðurland eystra er hérað sem nær yfir austurhluta Norðurlands. Það var upphaflega skilgreint sem eitt af átta kjördæmum Íslands árið 1959 og náði yfir Eyjafjarðarsýslu, Suður-Þingeyjarsýslu og Norður-Þingeyjarsýslu ásamt með kaupstöðunum Akureyri, Ólafsfirði, Dalvík og Húsavík. Með breyttri kjördæmaskipan sem fyrst var kosið eftir 2003 var Norðurlandskjördæmi eystra sameinað Austurlandskjördæmi til að mynda Norðausturkjördæmi.
1992 var Héraðsdómur Norðurlands eystra stofnaður með aðsetur á Akureyri.
Norðurland eystra er eitt af átta héruðum sem Hagstofa Íslands notar við framsetningu á ýmsum talnagögnum, t.d. um íbúafjölda. Árið 2007 var héraðið stækkað bæði til austurs og vesturs eftir sameiningu sveitarfélaga yfir mörk þess. Siglufjörður sameinaðist Ólafsfirði og sameinað sveitarfélag þeirra, Fjallabyggð, telst nú til Norðurlands eystra. Sömu sögu er að segja af Þórshafnarhreppi og Skeggjastaðahreppi sem sameinuðust í Langanesbyggð.
Fjölmennasti bærinn er Akureyri. Aðrir stærri bæir eru Húsavík, Dalvík, Siglufjörður og Ólafsfjörður.
Remove ads
Sveitarfélög
Remove ads
Mannfjöldi
Íbúar voru 32.026 manns árið 2025.[2]
Remove ads
Tilvísanir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads