Shigeru Ishiba
Japanskur stjórnmálamaður From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Shigeru Ishiba (f. 4. febrúar 1957) er japanskur stjórnmálamaður sem er núverandi forsætisráðherra Japans og forseti Frjálslynda lýðræðisflokksins. Hann var kjörinn leiðtogi flokksins þann 30. september árið 2024.[1]
Ishiba hefur setið á japanska þinginu frá árinu 1986 og hefur gegnt fjölda ráðherraembætta, meðal annars embætti varnarmálaráðherra. Hann hafði boðið sig fjórum sinnum fram til embættis forseta Frjálslynda lýðræðisflokksins áður en hann varð loks fyrir valinu árið 2024. Ishiba bauð sig fram í fimmta sinn eftir að Fumio Kishida forsætisráðherra sagði af sér í ágúst það ár og hafði betur gegn hinni íhaldssömu Sanae Takaichi í seinni umferð leiðtogakjörsins.[2]
Miðað við Takaichi þykir Ishiba frjálslyndur í skoðunum. Hann hefur meðal annars talað fyrir því að konur ættu að geta orðið Japanskeisarar.[2] Ishiba tilkynnti að hann myndi rjúfa þing og boða til kosninga um leið og hann tæki við embætti forsætisráðherra.[3] Í kosningunum, sem fóru fram innan við mánuði frá því að Ishiba tók við embætti, hlaut Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn sína verstu útreið frá árinu 2009 og missti meirihluta sinn á þingi.[4]
Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn og samstarfsflokkur hans, Komeiti, töpuðu meirihluta sínum á efri deild japanska þingsins í þingkosningum í júlí 2025. Ishiba baðst afsökunar á niðurstöðunni en sagðist þó í fyrst ætla að halda áfram sem forsætisráðherra.[5] Skömmu síðar, eftir að Japan hafði samið um verslunarsamning við Bandaríkin, tilkynnti Ishiba hins vegar að hann myndi segja af sér.[6]
Remove ads
Tilvísanir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads