Sigvaldi Thordarson
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Sigvaldi Thordarson (f. 27. desember 1911, d. 16. apríl 1964) var afkastamikill arkitekt og eftir hann standa margar þekktar byggingar, einbýlishús, fjölbýli af ýmsum gerðum, skólar, hótel og virkjanir.[1] Byggingar hans einkennast af sterkum litum[2], oft gulum og bláum með hvítu sem nú eru oft kallaðir Sigvaldalitir.[3][4]
Sigvaldi sat í stjórn Arkitektafélags Íslands.[2] Hann tók einnig þátt í fjölda samkeppna með góðum árangri t.d. um nýtt Ráðhús Reykjavíkur[1] (það hús var ekki byggt).
Sigvaldi er einn af þekktustu og virtustu arkitektum Íslands.[4]
Remove ads
Fjölskylda
Foreldrar Sigvalda voru Þórður Jónsson og Albína Jónsdóttir. Þau bjuggu á Ljósalandi í Vopnafirði.[5]
Fyrri kona Sigvalda var Pálína Þórunn Jónsdóttir (1913-1995) og áttu þau saman fjögur börn: Albínu Thordarson, Guðfinna Thordarson, Jón Örn Thordarson og Hallveig Thordarson.[5]
Seinni kona Sigvalda var Kamma Axelsdóttir Nielsen (1923-1986) og áttu þau saman einn son, Sigvalda Thordarson.[5]
Menntun
Sigvaldi lauk prófi frá Iðnskólanum í Reykjavík 1933 og sveinsprófi í húsasmíði 1934.
Hann lauk frá Det tekniske Selskabs Skole í Kaupmannahöfn 1939.
Árið 1947 lauk hann prófi í húsagerðarlist frá Akademiet for de skønne Kunster í Kaupmannahöfn[5] eftir að hafa þurft að gera hlé á námi sínu vegna seinni heimsstyrjaldarinnar.[1]
Starfsferill
Húsameistaraskrifstofa í Reykjavík ásamt Gísla Halldórssyni 1941-1945 og 1947.[5]
Forstöðumaður teiknistofu Sambands íslenskra samvinnufélaga 1948-1951.[5]
Rak eigin teiknistofu frá 1951-1964.[5]
Húsgögn
Sigvaldi hannaði oft fasta innanstokksmuni í húsum sínum, t.d. hillur, skrifborð og fleira í verslun Máls og menningar Laugavegi. Hann hannaði einnig borðstofusett sem samanstóð af skenk, stækkanlegu borði og stólum úr reyktri eik og tekki. Húsgögnin voru smíðuð af Helga Einarssyni húsgagnasmið og framleidd á verkstæði hans í Brautarholti 26.[6][7] Borðstofusettið var meðal sýningargripa á sýningunni "Hlutirnir okkar" í Hönnunarsafni Íslands árið 2012.[7]
Remove ads
Byggingar
- Yfirlit yfir byggingar sem Sigvaldi teiknaði á sínum starfsferli. Listinn er ekki tæmandi.[5][8]
- Hreyfilshúsið - Reykjavík. Sjö hæða skrifstofuhúsnæði við gatnamót Fellsmúla og Grensásvegs.
- Hallveigarstaðir - Reykjavík
- Íþróttahús Háskóla Íslands - Reykjavík
- Grímsárvirkjun stöðvarhús og stífla 1955–1958
- Hús Bókabúðar Máls og menningar, Laugavegi - Reykjavík
- Fjölbýlishús Háaleitisbraut 26-30 - Reykjavík, byggt af Byggingarfélagi Reykjavíkur[9]
- Fjölbýlishús Háaleitisbraut 109-111 - Reykjavík
- Hlíðaskóli - Reykjavík
- Fjölbýlishús Hátún 8 - Reykjavík
- Fjölbýlishús Hverfisgata 86 - Reykjavík
- Reiðhjallavirkjun
- Laxárvirkjun - Laxárstöð II, 1953[10]
- Gljúfrasteinn Mosfellsdal sundlaug
- Bjarmastígur 10
- Einbýlishús Ægissíða 80 - Reykjavík, friðað að ytra byrði árið 1999[11][12]
- Varmalandsskóli
- Bifröst[4]
- Karfavogur 14-24 – reist 1960-1962[13]
- Langholtsvegur 131 ásamt Gísla Halldórssyni, reist 1948[13]
- Langholtsvegur 133 ásamt Gísla Halldórssyni, reist 1948[13]
- Langholtsvegur 134 ásamt Gísla Halldórssyni, reist 1951[13]
- Langholtsvegur 135 ásamt Gísla Halldórssyni, reist 1948[13]
- Langholtsvegur 136 ásamt Gísla Halldórssyni, reist 1950[13]
- Langholtsvegur 137 ásamt Gísla Halldórssyni, reist 1950[13]
- Langholtsvegur 137 ásamt Gísla Halldórssyni, reist 1948[13]
- Langholtsvegur 172 ásamt Gísla Halldórssyni, reist 1952[13]
- Langholtsvegur 176 ásamt Gísla Halldórssyni, reist 1949[13]
- Nökkvavogur 9 ásamt Gísla Halldórssyni, reist 1953[13]
- Nökkvavogur 11 ásamt Gísla Halldórssyni, reist 1948[13]
- Nökkvavogur 16, reist 1953[13]
- Nökkvavogur 11 ásamt Gísla Halldórssyni, reist 1950[13]
- Nökkvavogur 16, reist 1952[13]
- Selvogsgrunn 23, reist 1956
- Hátún 37 ásamt Gísla Halldórssyni, reist 1946[14]
- Miðtún 54 ásamt Gísla Halldórssyni, reist 1942[14]
- Miðtún 70 ásamt Gísla Halldórssyni, reist 1943[14]
- Miðtún 88 ásamt Gísla Halldórssyni, reist 1949[14]
- Samtún 14 ásamt Gísla Halldórssyni, reist 1941[14]
- Samtún 16 ásamt Gísla Halldórssyni, reist 1941[14]
- Sunnutorg við Langholtsveg 70, reist 1959[15]
- Rafstöð Hafnarbyggð 16 - Vopnafirði[16]
- Kirkjubraut 3 - Seltjarnarnesi, reist 1954.[3]
- Melabraut 30 - Seltjarnarnesi, reist 1958.[3]
- Fjölbýlishús við Skaftahlíð teiknað fyrir starfsmenn stjórnarráðsins árið 1955.[4]
- Einbýlishús Vesturbrún 4 - Reykjavík[4]
- Félagsheimilið Neskaupstað[4]
- Sjúkrahúsið á Sauðárkróki[4]
- Orlofsheimili ASÍ við Hveragerði[4][5]
Remove ads
Heimildir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads