Sortulyng
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Sortulyng (eða mulningur) (fræðiheiti: Arctostaphylos uva-ursi) er berjategund. Það er smávaxinn runni 15 - 30 sentimetra hár. Blöð sortulyngs eru þykk, gljáandi og sígræn. Þau innihalda mikla sútunarsýru (tannín) sem beitarvörn. Aldinin eru nefnd lúsamulningar. Þau eru algeng fæða og vetrarforði hagamúsa. Sortulyng vex í lyngmóum og skóglendi en er viðkvæmt fyrir vetrarbeit. Hæsti skráði fundarstaður sortulyngs á Íslandi er 650 metrum sunnan í Skessuhrygg í Höfðahverfi.

Það eru fjórar undirtegundir :
- Arctostaphylos uva-ursi subsp. uva-ursi. (e. Common Bearberry); vex á pólsvæðum og nálægt þeim og í fjöllum lengra á syðri svæðum.
- Arctostaphylos uva-ursi subsp. adenotricha. vex í hálendi í Sierra Nevada í Bandaríkjunum.
- Arctostaphylos uva-ursi subsp. coactilis. Vex á norðanverðri strönd Kaliforníu til San Fransiskó flóans.
- Arctostaphylos uva-ursi subsp. cratericola (J. D. Smith) P. V. Wells. (e. Guatemala Bearberry), vex í Guatemala í mikilli hæð (3000-4000 m).
Remove ads
Sortulyng til forna
Sortulyng (eða mulningur) var hér á landi stundum notað til að drýgja tóbak. Það var einnig þekkt meðal Sioux indíána Norður-Ameríku. En frægast er sortulyngið sem uppistaða í bleki fornaldar. Það var einnig notað sem litarefni. Í galdrabók frá 15. öld er það sagt gott til að fæla burt drauga. Nafnið lúsamulningar er einnig þekkt, en það stafar af því að menn töldu sig verða lúsuga af því að borða sortulyng.
Remove ads
Heimildir

Wikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinu Sortulyng.

Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist sortulyngi.

Wikilífverur eru með efni sem tengist sortulyngi.
- Fyrirmynd greinarinnar var „Arctostaphylos uva-ursi“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 5. október 2006.
- Flóra Íslands - Sortulyng
Remove ads
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads