Sparpera
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Sparpera er flúrljós, orkusparandi ljósapera gerð úr gleri, kvikasilfri og málmum og í ýmsum formum. Sparperan hefur að mestu leyst glóperuna af hólmi síðan að reglugerð um bann við notkun glóperunnar var sett hjá Evrópusambandinu, Ástralíu og í Bandaríkjunum.[1]

![]() | Þessa grein þarf að uppfæra. |
Sparpera virkar á sama hátt eins og önnur flúrljós; rafeindir sem bindast við kvikasilfurs atóm eru orkuhlaðin svo þau gefi frá sér útfjólublátt ljós þegar þau ná lægra orkustigi. Þetta útfjólubláa ljós er yfirfært í sýnilegt ljós þegar ljósið fer í gegn um húðun perunar og einnig í hita þegar ljósið fer um önnur efni eins og gler.
Helsti kostur sparperunnar er 80% orkusparnaður miðað við glóperu, hún endist í 6-10 ár og ekki er hætta á íkveikju vegna ofhitnunar. Hún hefur breiðara úrval ljóslita en aðrar perur.[1] Sem dæmi um mögulegan orkusparnað má hugsa sér að ef öll heimili á Íslandi, 110 þúsund talsins, skiptu út tíu 60W glóperum fyrir tíu 11W sparperur, þá væri orkan sem sparaðist um 60 milljón kWst á ári miðað við 2,7 klukkustunda meðalnotkun á dag. Það samsvarar árlegri raforkuframleiðslu 18 Elliðaárvirkjana eða heildarraforkunotkun 13.000 íslenskra heimila yfir árið.[2]
Í september 2009 tók í gildi fyrsti áfangi sölubanns innan ESB á orkufrekum ljósaperum.[3]
Í september 2021, var allur innflutningur, útflutningur og framleiðsla á samþættum sparperum í Evrópusambandinu bannaður og sala þeirra hefur ekki verið heimiluð síðan.[4]
Remove ads
Gerðir
Mikil þróun hefur orðið í gerð ljósapera, en um miðja 20. öldina varð flúrljós til, sem er forveri sparperu.[5] Flúrljós aðgreinist frá glóðarperunni á þann hátt að ljósið myndast ekki við hita heldur þegar rafeindir rekast á gassameindir, sem eru undir lágum þrýstingi í ljósgjafanum.
Til eru tvær gerðir sparpera, samþættar og ósamþættar perur, þar sem CFL-i stendur fyrir samþættingu og CFL-ni fyrir ósamþættar. Samþættar perur sameina rör og straumfestu. Þessar perur gera viðskiptavinum kleift að skipta glóperum út fyrir sparperur. Samþættar perur virka í mörgum tilfellum í rými sem voru hannaðar fyrir glóperur.
Ósamþættar perur hafa straumfestuna við tengið og vanalega er aðeins skipt úr flúrperunni við lok líftímans. Þar sem straumfestan er við tengið þá eru þær stærri og endast lengur en samþættar perur og þurfa ekki að vera skipt út við lok líftíma.
Remove ads
Eiginleikar
Tegundir
Hægt er að fá margar tegundir sparpera, bæði að lögun, ljósstyrk og lit[6] bæði til innan- og utanhúss notkunar.[7]
Dæmi um mismunandi gerðir sparpera:
- Tveggja glasa perur (e. twin tube lamps) eru perur með tveimur samhliða ljósarörum. Þær henta vel í lampa, loftljós og veggljós.
- Fjögurra glasa perur (e. quad tube lamps) gefa svipaða birtu, en eru helmingi styttri en tveggja glasa perurnar og henta vel í smærri lampa.
- Þriggja glasa perur (e. triple biax lamps) eru mjög stuttar perur sem gefa frá sér mikið ljósmagn og eru hentugar í lýsingar í innréttingum.
- Spíralperur (e. spiral lamps) eru spírallaga perur sem gefa frá sér mikið ljósmagn og eru vinsælustu sparperurnar.
- F perur (e. F lamps) draga nafn sitt af því að þær líkjast stafnum F í lögun og henta vel í borðlampa og lesljós.
- Hringlaga perur (e. circular lamps) draga nafn sitt af því að þær eru hringlaga og gefa þær mikla birtu og henta vel í lesljós og aðra lampa sem hringlaga perur passa í.[8]
Líftími
Gæði sparpera eru mismunandi góð og geta farið eftir því hvar þær eru framleiddar. Norsk könnun sem gerð var árið 2007 sýndi að hægt var að fá góðar sparperur sem entust 15-16.000 klst. og einnig slæmar, sem bæði entust í styttri tíma, lýstu illa og innihéldu allt að 10 mg af kvikasilfri sem eru 5 mg umfram reglugerð.[9] Líftími perunnar fer eftir mörgum þáttum, rafmagnsnotkun, galla við framleiðslu, yfirspennu í rafkerfi, höggum, fjölda skipta sem slökkt er á og kveikt er á perunni og hitastig rýmis ásamt öðrum þáttum.[10]
Remove ads
Kostir og gallar
Kostir
Gallar
- Innihalda kvikasilfur[1]
- Missa birtueiginleika með árunum[1]
- Skila ekki réttum lit á hlutum[1]
- Sparperur eru smástund að ná fullum ljósstyrk[12]
Heilsufars og umhverfisáhrif
Hitaáhrif
Við aðstæður þar sem loftkælingar er þörf til dæmis í heitu loftslagi og víða í ýmsum byggingum, veldur notkun á sparperum minna álagi á kælikerfi, þar sem perurnar gefa frá sér lítinn hita og sparar þar með orku. Hins vegar þar sem þörf er á hitun, eykur notkun á sparperum orkuþörfina fyrir hitakerfið.[13]
Endurvinnsla
Kvikasilfur er mjög slæmt fyrir umhverfið og brotnar mjög hægt niður. Reglugerð ESB segir að kvikasilfursmagn í sparperu megi vera að hámarki 5 mg. Nauðsynlegt er að meðhöndla sparperur á réttan hátt þegar þeim er fargað. Við endurvinnslu þarf að aðskilja kvikasilfur frá gleri og málmum og koma þannig í veg fyrir að kvikasilfur berist út í jarðveg og grunnvatn. Glersallinn er urðaður og málmarnir endurunnir en kvikasilfrið er sent til sérstakrar meðhöndlunar í Danmörku.[1]
Sparpera brotin
Eftirfarandi þarf að hafa í huga ef sparpera brotnar. Forðast skal að anda að sér kvikasilfursögnum sem losna út í umhverfið og skal opna glugga. Hreinsa brotin upp með pappaspjaldi eða blautum eldhúspappír, setja brotin í loftþétt ílát og skila síðan sem spilliefni á enduvinnslu- eða móttökustöð. [14]
Remove ads
Tilvísanir
Tenglar
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads