Theodor Escherich
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Theodor Escherich (29. nóvember 1857 í Ansbach í Bæjaralandi – 15. febrúar 1911 í Vín í Austurríki) var barnalæknir og prófessor við háskólana í München, Graz og Vín. Hann er þekktastur fyrir uppgötvun sína á þarmabakteríunni Escherichia coli, sem nefnd var eftir honum 1919.
Remove ads
Ævi og störf
Escherich stundaði læknanám á árunum 1876 til 1881 á nokkrum mismunandi sjúkrahúsum, eins og þá var alsiða í þýsku læknanámi. Hann hóf nám sitt í Würzburg, en nam einnig í Berlín, Kiel, Strasbourg í Austurríki, og lauk svo embættisprófi með afbragðs einkunn í München 1881. Hann ritaði svo doktorsritgerð undir leiðsögn K. C. A. J. Gerhardt um þarmasýkingar í ungbörnum [1]. Hjá Gerhardt fékk hann mikinn áhuga á örverufræðum almennt, og sérstaklega áhrifum þarmaörvera á heilsu ungbarna. Hann helgaði sig því rannsóknastörfum í örverufræðum framan af starfsævinni og stundaði meðal annars rannsóknir á kólerufaraldrinum í Napólí 1884 [2] og á gerlagróðri í brjóstamjólk [3]. Það voru svo rannsóknir þær sem hann stundaði í München á árunum 1885 og 1886 og birti í nýdoktorsritgerð (Habilitationsschrift) sem hann er þekktastur fyrir, en þar lýsti hann 19 mismunandi þarmabakteríum ungbarna, þar á meðal bakteríunni sem síðar hlaut nafnið Escherichia coli [4]. Í ritgerðinni leiddi hann líkur að því að hlutverk bakteríanna í meltingu barna væri óverulegt.
Árið 1890 þáði hann kennslu- og rannsóknastöðu í barnalækningum við Karl Franzens Háskólann í Graz í Austurríki og gerðist þar fullgildur prófessor (ordentlicher Professor) árið 1894. Árið 1902 færði hann sig um set til Vínarborgar þar sem hann þáði prófessorsstöðu í barnalækningum við Vínarháskóla og stýrði St. Anna barnaspítalanum. Ári síðar stofnaði hann samtök til verndar ungbörnum (Verein Säuglingsschutz) og hóf áróðursherferð í því skyni að hvetja mæður til brjóstagjafa. Hann var óþreytandi við að vekja athygli á heilbrigðismálum barna og kvenna. Árið 1906 var hann skipaður ráðgjafi (kaiserlich-königlicher Hofrat) við hirð Frans Jósefs Austurríkiskeisara[5].
Remove ads
Heimildir
Tenglar
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads