Willard Van Orman Quine
From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Willard Van Orman Quine (25. júní 1908 – 25. desember 2000) var einn áhrifamesti heimspekingur og rökfræðingur Bandaríkjanna á 20. öld.

Quine var stundum nefndur „heimspekingur meðal heimspekinga“. Hann tilheyrði þeirri hefð innan heimspekinnar sem nefnist rökgreiningarheimspeki, en hélt því þó einnig fram að heimspeki væri ekki hugtakagreining. Hann var Edgar Peirce prófessor í heimspeki við Harvard University frá árinu 1956 til æviloka árið 2000. Quine er meðal áhrifamestu heimspekinga á síðari hluta 20. aldar og er meðal þekktustu heimspekinga í sögu bandarískrar heimspeki.
Remove ads
Æviágrip
Quine ólst upp í Akron í Ohio fylki í Bandaríkjunum. Hann hlaut B.A.-gráðu frá Oberlin College og doktorsgráðu frá Harvard árið 1932. Á Harvard nam hann rökfræði undir leiðsögn Alfreds North Whitehead. Að námi loknu ferðaðist Quine um Evrópu á rausnarlegum rannsóknarstyrk. Hann kynntist pólskum rökfræðingum og heimspekingum Vínarhringsins sem höfðu mikil áhrif á hann. Munaði þar mestu um áhrif Rudolfs Carnap.
Frá 1942 til 1946 starfaði Quine í leyniþjónustu bandaríska flotans.
Að stríðinu loknu varð Quine kennari í heimspeki við Harvard. Margir frægir heimspekingar námu hjá Quine, meðal annarra Donald Davidson, Daniel Dennett, Dagfinn Föllesdal, Gilbert Harman, David Lewis og Charles Parsons.
Remove ads
Helstu ritverk
- Mathematical Logic (Cambridge, Mass.: Harvard University Press, 1940, (2. útg.) 1951). ISBN 0-674-55451-5
- Elementary Logic (Cambridge, Mass.: Harvard University Press, 1941, (endursk. útg.) 1966). ISBN 0-674-24451-6
- Methods of Logic (New York: Holt, 1950, (4. útg.) 1982). ISBN 0-674-57176-2
- From a Logical Point of View: 9 Logico-Philosophical Essays (Cambridge, Mass.: Harvard University Press, 1953, (endursk. 2. útg.) 1996). ISBN 0-674-32351-3
- Word and Object (Cambridge, Mass.: MIT Press, 1960). ISBN 0-262-67001-1
- Set Theory and Its Logic (Cambridge, Mass.: MIT Press, 1963, (2. útg.) 1969). ISBN 0-674-80207-1
- The Ways of Paradox and Other Essays (New York: Random House, 1966, (2. útg.) 1976). ISBN 0-674-94837-8
- Selected Logic Papers (New York: Random House, 1966, (2. útg.) 1995). ISBN 0-674-79837-6
- Ontological Relativity and Other Essays (New York: Columbia University Press, 1969). ISBN 0-231-08357-2
- Philosophy of Logic (Englewood: Prentice Hall, 1970, (2. útg.) 1986). ISBN 0-674-66563-5
- Theories and Things (Cambridge, Mass.: Harvard University Press, 1981). ISBN 0-674-87926-0
- Quiddities: An Intermittently Philosophical Dictionary (Cambridge, Mass.: Harvard University Press, 1987). ISBN 0-14-012522-1
- Pursuit of Truth (Cambridge, Mass.: Harvard University Press, 1990, (2. útg.) 1992). ISBN 0-674-73951-5
- From Stimulus to Science (Cambridge, Mass.: Harvard University Press, 1995). ISBN 0-674-32636-9
Remove ads
Heimild
Fyrirmynd greinarinnar var „Willard Van Orman Quine“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 1. desember 2005.
Tengt efni
- Donald Davidson
- Rudolf Carnap
- Dagfinn Föllesdal
- Quine
- Rökfræðileg raunhyggja
- Þverstæða Quines
- Þýðingabrigði
Tenglar

Wikivitnun er með safn tilvitnana á síðunni Willard Van Orman Quine.
- Willard Van Orman Quine 1908-2000 — Philosopher and Mathematician. Vefsíða sem Douglas Boynton Quine, sonur Quines, heldur uppi.
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads