1932
ár From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Árið 1932 (MCMXXXII í rómverskum tölum)
| Ár | 
| Áratugir | 
| Aldir | 
Á Íslandi
- 2. janúar-26. mars - Vegna kreppunnar buðu söfnuðirnir í Reykjavík upp á ókeypis máltíðir í Franska spítalanum. Einnig fengu fátæk heimili mjólkursendingar. Starfinu var haldið áfram frá 8. október og fram í febrúar næsta árs.
 - 17. janúar - Eimskipafélag Reykjavíkur var sett á fót.
 - 21. janúar - Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis var stofnaður.
 - Vor - Skólavarðan var rifin á Skólavörðuholti. Styttan af Leifi Eiríkssyni kom í staðinn.
 - 28. maí - Ungmennasambandið Úlfljótur var stofnað í Skaftafellssýslum.
 - Í júní - Styttan af Leifi heppna kom til landsins og var sett upp á Skólavörðuholti.
 - 2. september - Fyrsti maðurinn var grafinn í Fossvogskirkjugarði, Gunnar Hinriksson, vefari. [1]
 - 9. nóvember - Gúttóslagurinn í Reykjavík. Áheyrendur hlupu upp bæjarstjórnarfundi í Góðtemplarahúsinu vegna ákvörðunar bæjarstjórnar að lækka laun í atvinnubótavinnu.
 
- Fyrri hluti Sölku Völku eftir Halldór Laxness kom út.
 - Sápuverksmiðjan Sjöfn var stofnuð á Akureyri.
 - Þróttur Vogum var stofnað.
 - Kvikmyndaeftirlit ríkisins tók til starfa.
 - Kassagerð Reykjavíkur var stofnuð.
 - Félag íslenskra hljómlistarmanna var stofnuð.
 
Fædd
- 11. janúar - Guðmundur Georgsson, læknir og friðarsinni (d. 2010).
 - 16. janúar - Árni Björnsson, þjóðháttafræðingur.
 - 14. febrúar - Haukur Sigurður Tómasson, jarðfræðingur. (d. 2014)
 - 24. maí - Stefán Sigurður Guðmundsson, stjórnmálamaður (d. 2011).
 - 7. júlí - Ólafur G. Einarsson (d. 2023), alþingismaður og menntamálaráðherra.
 - 24. júlí - Guðmundur E. Sigvaldason, jarðfræðingur (d. 2004).
 - 16. október - Guðbergur Bergsson, rithöfundur. (d. 2023)
 - 25. október - Oddur Björnsson, leikskáld (d. 2011).
 - 13. nóvember - Steinn Guðmundsson, íslenskur knattspyrnumaður (d. 2011).
 - 21. nóvember - Jakobína Valdís Jakobsdóttir, skíðakona.
 - 21. desember - Hringur Jóhannesson, myndlistarmaður (d. 1996).
 
Dáin
- 28. mars - Arinbjörn Sveinbjarnarson, bókbindari og bæjarfulltrúi (f. 1866).
 
Remove ads
Erlendis
- 4. febrúar - Vetrarólympíuleikarnir 1932 fóru fram í New York-fylki.
 - 18. febrúar - Japan lýsti því yfir af Mandsjúkó (Mansjúría) væri sjálfstætt frá Kína.
 - 2. mars - Mäntsälä-uppreisnin í Finnlandi: Misheppnað valdarán finnsku Lapua-fasistahreyfingarinnar.
 - 13. apríl - Heinrich Brüning kanslari Þýskalands bannaði SA og SS-sveitirnar. Banninu er aflétt í júní.
 - 7. maí - Paul Doumer, forseti Frakklands, var myrtur af rússneskum fasista.
 - 16. maí - Óeirðir meðal múslima og hindúa í Mumbai urðu til þess að þúsundir létust.
 - 25. maí - Guffi birtist fyrst sem teiknimyndapersóna Disney.
 - 18. júní - Alþjóða Körfuknattleikssambandið var stofnað.
 - 5. júlí - António de Oliveira Salazar varð einráður í Portúgal næstu 36 árin.
 - 30. júlí - Sumarólympíuleikarnir 1932 hófust.
 - 31. júlí - Nasistaflokkurinn varð stærsti flokkurinn á þýska þinginu, Reichstag, og hlaut 37% atkvæða.
 - 6. ágúst - Kvikmyndahátíðin í Feneyjum var haldin í fyrsta sinn.
 - 18. ágúst - Auguste Piccard fór í 16.197 metra hæð í loftbelg.
 - 9. september - Chaco-stríðið milli Paragvæ og Bólivíu hófst.
 - 22. september - Hungursneyðin í Sovét-Úkraínu hófst: Milljónir sultu á næstu 2 árum.
 - 23. september - Ibn Sád varð konungur Sádi-Arabíu þegar Sádi-Arabía verður til með sameiningu landsins og konungsríkinu Hejaz og Nejd.
 - 8. nóvember - Forsetakosningar í Bandaríkjunum fóru fram.
 - 9. nóvember - Fellibylur fór um Kúbu og 2.500 létust.
 
- Knattspyrnufélögin Danubio F.C. í Úrúgvæ, 1. FC Kaiserslautern í Þýskalandi, FC Metz í Frakklandi, Wigan Athletic F.C. í Englandi voru stofnuð.
 - Lego var stofnað.
 - Sydneyhafnarbrúin var opnuð.
 - Aldous Huxley gaf út Veröld ný og góð (Brave New World).
 
Fædd
- 14. janúar - Carlos Borges, úrúgvæskur knattspyrnumaður (d. 2014).
 - 27. febrúar - Elizabeth Taylor, bandarísk leikkona (d. 2011).
 - 18. mars - John Updike, rithöfundur (d. 2009).
 - 18. apríl - Nic Broca, belgískur teiknari (d. 1993).
 - 20. júlí - Paik Nam-june, Suður-Kóreskur listamaður, oft talinn upphafsmaður svokallaðrar myndbandslistar (d. 2006).
 - 31. júlí - John Searle, bandarískur heimspekingur.
 - 17. ágúst - V.S. Naipaul, indverskur rithöfundur og Nóbelsverðlaunahafi (d. 2018)
 - 26. september - Manmohan Singh, forsætisráðherra Indlands (d. 2024).
 - 27. október - Sylvia Plath, bandarískt ljóðskáld, rithöfundur og smásagnahöfundur (d. 1963).
 
Dáin
Remove ads
Nóbelsverðlaunin
- Eðlisfræði - Werner Karl Heisenberg
 - Efnafræði - Irving Langmuir
 - Læknisfræði - Sir Charles Scott Sherrington, Edgar Douglas Adrian
 - Bókmenntir - John Galsworthy
 - Friðarverðlaun - Voru ekki veitt þetta árið
 
Tilvísanir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads