Áramótaskaup 2020

Áramótaskaup From Wikipedia, the free encyclopedia

Áramótaskaup 2020
Remove ads

Áramótaskaup 2020 er áramótaskaup sem sýnt var á RÚV þann 31. desember 2020. Aðal viðfangsefni skaupsins var Covid-19 faraldurinn og samkomutakmarkanir sem fylgdu honum.

Staðreyndir strax Tegund, Handrit ...

Höfundar skaupsins voru Hugleikur Dagsson, Lóa Hjálmtýsdóttir, Vala Kristín Eiríksdóttir, Þorsteinn Guðmundsson, Bragi Valdimar Skúlason og Katla Margrét Þorgeirsdóttir. Reynir Lyngdal var leikstjóri. Tökur byrjuðu í nóvember 2020 og var framleiðandi Republik.[1]

85% landsmanna voru ánægt með skaupið, sem að braut met skaupsins 2013 og hélt titlinum sem það skaup sem að flestir voru ángæðir með þar til að 89% landsmanna sögðust vera ánægt með skaupið 2022.[2]

Remove ads

Viðfangsefni

Meðal viðfangsefna voru:

  • Mikið magn af sömu spurningum á upplýsingafundum Almannavarna.
  • Seinkanir á fermingum vegna samkomutakmarkana.[3]
  • Mikil aðsókn í Sorpu því það voru allir að nýta tímann við samkomutakmarkanirnar að taka til.[4]
  • Fólk að syngja fyrir utan elliheimili fyrir eldriborgara í samkomutakmörkununum.[5]
  • Flóknar sóttvarnareglur.[6]
  • Fólk sem hélt að sóttvarnareglur ættu ekki við þau því það var búið að fá Covid.
  • Þegar Samherji framleiddi sína eigin heimildamynd um Samherjaskjölin.[7]
  • Þegar allir vildu sýna gamla mynd af sér með Vigdísi Finnbogadóttur.[8]
  • Rasískt merki á fatnaði lögregluþjóns.[9]
  • Veggjakrot á Skúlagötu "Hvar er nýja stjórnaskráin" fjarlægt.[10]
  • Þegar fólk missti félagsfærni vegna of mikillar einangrunar í Covid.
  • Lítil athygli nemenda í fjarkennsla.[11]
  • Helgi Björnsson, Bubbi og fleiri með tónleika sem sýndur voru í beinni útsendingu á netinu.
  • Skipverjar á Júlíusi Geirmundssyni haldið um borð á meðan Covid-19 veikindi geisuðu um borð.[12]
  • Auglýsing Borgarleikhússins þar sem Bubbi var með sígarettu.[13]
  • Tveir fótboltamenn með enska karlalandsliðinu brutu sóttvarnir þegar þeir hittu tvær konur á hótelherbergi í Hótel Sögu.[14]

Annað sem kom fram í skaupinu: Pabbabrandarar, Björn Ingi, loftslagskvíði, Ísland í dag, Katrín Jakobsdóttir, útilokunarmenning, átakið "Ferðumst innanlands", Gísli Marteinn, Sindri Sindras­son, samskiptaforritið Zoom, Kári Stefánsson, Alma Möller, Víðir Reynisson, Þórólfur Guðnason, "Let It Out!" auglýsingaherferð Inspired by Iceland og jarðskjálftahrinan á Reykjanesinu.

Remove ads

Lög

Frumsamin

Upphafslag - lag Stefán Örn Gunnlaugsson og Birgir Steinn Stefánsson, texti Hugleikur Dagsson Held í mér andanum - lag Stefán Örn Gunnlaugsson, texti Hugleikur Dagsson Klárum þetta saman (lokalag) - lag Stefán Örn Gunnlaugsson og Birgir Stefán Stefánsson, texti Bragi Valdimar Skúlason, söngur Friðrik Dór Jónsson, Salka Sól Eyfeld, Stefán Hilmarsson og Ragnhildur Gísladóttir

Lög með nýjum texta

Remove ads

Heimildir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads