Abraham Van Helsing
Sögupersóna í bókinni Drakúla frá 1897 From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Prófessor Abraham Van Helsing er skáldsagnapersóna í bók Bram Stokers Drakúla frá árinu 1897.


Van Helsing er hollenskur læknir sem hefur mörg áhugamál og afrek sem hægt er að sjá á nafnbótum hans: „M.D. (doktor í læknisfræði), D.Ph. (doktor í heimspeki), D.Litt. (doktor í bókmenntum), o.s.f.v., o.s.f.v.“ Hann er best þekktur sem vampíruveiðari.
Remove ads
Drakúla
Í skáldsögunni kallar fyrrum nemandi Van Helsings eftir honum, eða Dr. Seward, til að hjálpa honum við dularfullt mein Lucy Westenra. Þeir komast að því að það var vampíran Drakúla sem beit hana, og síðar í sögunni tekst honum ásamt Johnathan Harker, Arthur Holmwood, Dr. Seward og Minu Harker að drepa Drakúla.
Í öðrum verkum
Abraham Van Helsing kemur fram í manganu Hellsing. Þar leiðir afkomandi hans, Integra Hellsing, árásarsveit bresku ríkistjórnarinnar (og líka vampíruna Alucard en seinna kemur fram að hann sé Drakúla greifi) gegn herjum Millenniums. Van Helsing bregður fyrir í draumi Alucards, þar sem hann minnist oft á Drakúla, en í enda draumsins virðist Alucard gráta blóði. Í Hellsing OVA þáttunum gerist þetta í öðrum Hellsing þættinum.
Remove ads
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads
