Fossvogsdalur

From Wikipedia, the free encyclopedia

Fossvogsdalur
Remove ads

Fossvogsdalur er dalur á mörkum norðurhluta Kópavogs og suðurhluta Reykjavíkur, austur af Fossvogi. Um dalinn liggja göngu- og hjólastígar. Lækur og tjarnir liggja um hann miðjan. Leiktæki og frisbígolf eru á svæðinu.

Thumb
Fossvogsdalur.
Thumb
Fossvogsdalur um 1960.

Skógræktin var með gróðrarstöð vestast í dalnum og ræktaði þar upp tré frá árinu 1933 þegar Hákon Bjarnason verðandi skógræktarstjóri stofnsetti hana. Skógræktarfélag Reykjavíkur nýtir þann reit í dag. Við gróðrarstöðina er skógur sem nefndur er Svartiskógur. [1] Austast í dalnum hefur verið ræktað trjásafn og rósagarður.

Fossvogslaug er fyrirhuguð sundlaug í dalnum.

Remove ads

Tenglar

  • „Hvaðan er nafnið á Fossvogsdal komið?“. Vísindavefurinn.
  • Fossvogsstöðin, plöntuskóli Höfuðborgarsvæðisins Heiðmörk.is

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads