Friðrik 9. Danakonungur

From Wikipedia, the free encyclopedia

Friðrik 9. Danakonungur
Remove ads

Friðrik 9., (Christian Frederik Franz Michael Carl Valdemar Georg) (fæddur 11. mars 1899, dáinn 14. janúar 1972) var konungur í Danmörku frá 20. apríl 1947 til dauðadags. Hann er faðir fyrrverandi þjóðhöfðingja Danmerkur, Margrétar 2. Friðrik var sonur Kristjáns 10., og Alexandrínu drottningar.

Staðreyndir strax

Þann 24. maí 1935 giftist hann Ingiríði, prinsessu frá Svíþjóð (1910-2000), en hún var dóttir Gústafs Adolfs Svíakrónprins, seinna Gústaf 6. Adolf Svíakonungur. Friðrik og Ingiríður eignuðust þrjár dætur: Margréti, núverandi drottningu (f. 1940), Benediktu (f. 1944) og Önnu-Maríu (f. 1946), fyrrum Grikkjadrottningu.

Skömmu eftir að Friðrik hélt sína árlegu nýársræðu 1971/72 veiktist hann og lést nokkru seinna.

Thumb
Ingiríður og Friðrik nýtrúlofuð árið 1935


Fyrirrennari:
Kristján 10.
Danakonungur
(19471972)
Eftirmaður:
Margrét Þórhildur


  Þetta æviágrip sem tengist sögu og Danmörku er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
Remove ads
Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads