Li Keqiang
Forsætisráðherra Alþýðulýðveldisins Kína From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Li Keqiang (kínverska: 李克强; 1. júlí 1955 – 27. október 2023) var kínverskur stjórnmálamaður sem var forsætisráðherra Alþýðulýðveldisins Kína frá 2013 til 2023. Li var hagfræðingur að mennt[1] og var einn af helstu stjórnendum kínverskrar fjárhags-, utanríkis- og öryggisstefnu á ráðherratíð sinni. Hann var jafnframt næstráðandi í fastanefnd stjórnmálanefndar Kommúnistaflokks Kína, sem fer með æðstu völd í landinu. Li var einn af helstu leiðtogum „fimmtu valdakynslóðar“ Alþýðulýðveldisins ásamt aðalritaranum og forsetanum Xi Jinping.
- Þetta er kínverskt nafn: kenni- eða fjölskyldunafnið er Li, eiginnafnið er Keqiang.
Li komst til metorða með starfi sínu í ungliðahreyfingu Kommúnistaflokksins. Frá 1998 til 2004 var Li landstjóri Henan og flokksritari héraðsdeildar flokksins þar. Frá 2004 til 2007 var hann flokksritari í Liaoning, sem var æðsta stjórnmálaembætti héraðsins. Frá 2008 til 2013 var Li aðstoðarforsætisráðherra[2] í ríkisstjórn Wen Jiabao og fór fyrir ráðuneyti sem sneri meðal annars að fjárhagsþróun, verðstýringu, loftslagsbreytingum og þjóðhagfræðistjórn.
Vegna reynslu sinnar úr ungliðahreyfingunni var gjarnan litið á Li sem bandamann fyrrum flokksleiðtogans Hu Jintao. Li varð forsætisráðherra árið 2013 og stóð fyrir forgangsbreytingu kínversku stjórnarinnar úr áherslu á útflutningsþróun í aukna áherslu á neyslu innanlands. Li var einnig einn helsti hvatamaðurinn að „dýpkandi umbótum“ sem tilkynntar voru haustið 2013.
Eftir að Xi Jinping varð forseti Kína var Li Keqiang eini meðlimurinn í flokksráði Kommúnistaflokksins sem ekki var í innsta hring Xi. Li tapaði sæti sínu í fastanefnd stjórnmálanefndar flokksins í október 2022 og var leystur af hólmi sem forsætisráðherra af bandamanni Xi, Li Qiang, í mars næsta ár.[3][4]
Li Keqiang lést úr skyndilegu hjartaáfalli í Sjanghaí þann 27. október 2023, innan við ári eftir að hann lét af embætti forsætisráðherra.[5]
Remove ads
Tilvísanir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads