Li Qiang
Forsætisráðherra Alþýðulýðveldisins Kína From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Li Qiang (kínverska: 李强; pinyin: Lǐ Qiáng; f. 23. júlí 1959) er kínverskur stjórnmálamaður og áttundi og núverandi forsætisráðherra Alþýðulýðveldisins Kína frá mars 2023. Hann hefur verið næstæðsti meðlimurinn í fastanefnd stjórnmálanefndar kínverska kommúnistaflokksins frá október 2022. Hann var áður flokksritari Kommúnistaflokksins í Sjanghaí frá 2017 til 2022, flokksritari í Jiangsu-héraði frá 2016 til 2017 og héraðsstjóri Zhejiang frá 2012 til 2016.
- Þetta er kínverskt nafn: kenni- eða fjölskyldunafnið er Li, eiginnafnið er Qiang.
Remove ads
Li gekk í Kommúnistaflokkinn árið 1983 og varð ritari ungliðahreyfingar flokksins í Rui'an, Zhejiang. Hann vann síðar hjá borgaramáladeild héraðsins og varð flokksritari í Yong Kang í Wenzhou, ritari stjórnmála- og lagamálefna í Zhejiang og síðan aðstoðarflokksritari héraðsins. Hann varð héraðsstjóri Zhejiang árið 2012, flokksritari Jiangsu-héraðs árið 2016 og loksins flokksritari í Sjanghaí árið 2017. Sama ár hlaut Li sæti í stjórnmálanefnd kommúnistaflokksins.
Í stjórnartíð sinni í Sjanghaí lét Li opna STAR Market-kauphöllina, hafði umsjón með erlendum fjárfestingum í borginni eins og byggingu risaverksmiðju Tesla, Inc., auðveldaði innlendum innflytjendum að öðlast dvalarleyfi í borginni og lét byggja fimm nýja bæi til að bæta úr skorti á byggðarlandi. Hann skipaði jafnframt tveggja mánaða útgöngubann í Sjanghaí árið 2022 vegna kórónuveirufaraldursins, sem hafði mjög neikvæð áhrif á efnahag borgarinnar og hefur sætt gagnrýni.[1] Li hlaut engu að síður stöðuhækkun til fastanefndar stjórnmálanefndarinnar síðar á árinu 2022 og varð forsætisráðherra Kína árið 2023. Li hlaut nánast öll 2.900 atkvæðin á flokksþingi Kommúnistaflokksins.[2]
Li hefur unnið ásamt núverandi aðalritara Kommúnistaflokksins, Xi Jinping, í Zhejiang og er álitinn náinn bandamaður Xis.[3] Þrátt fyrir að vera náinn Xi er Li almennt talinn hlynntur viðskiptafrelsi.
Remove ads
Tilvísanir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads