Michel Barnier
franskur stjórnmálamaður From Wikipedia, the free encyclopedia
Remove ads
Michel Jean Barnier (f. 9. janúar 1951) er franskur stjórnmálamaður og fyrrum embættismaður hjá Evrópusambandinu sem var forsætisráðherra Frakklands frá 5. september til 13. desember 2024.
Barnier var aðalsamningamaður Evrópusambandsins gagnvart Bretlandi í tengslum við útgöngu Bretlands úr sambandinu (Brexit). Barnier lýsti yfir áhuga á að bjóða sig fram gegn Emmanuel Macron í forsetakosningum Frakklands árið 2022 en hlaut ekki tilnefningu flokks síns.[1]
Macron forseti útnefndi Barnier forsætisráðherra Frakklands þann 5. september 2024. Þá hafði ríkt stjórnarkreppa í Frakklandi eftir þingkosningar í júlí þar sem enginn flokkur eða kosningabandalag vann hreinan meirihluta.[2] Barnier er elsti maður sem hefur tekið við embætti forsætisráðherra Frakklands.[3]
Barnier sat aðeins sem forsætisráðherra í um tvo mánuði þar til franska þingið lýsti yfir vantrausti gegn stjórn hans að undirlagi stjórnarandstöðuflokka bæði til hægri og vinstri.[4] Þingið greiddi atkvæði um vantrauststillögu gegn Barnier þann 4. desember eftir að hann beitti ákvæði í frönsku stjórnarskránni til að knýja gegn fjárlög án samþykktar þingmanna. Eftir vantraustið baðst Barnier lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt en var beðinn að sitja áfram sem leiðtogi starfsstjórnar uns ný stjórn yrði skipuð.[5]
Remove ads
Tilvísanir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Remove ads