Nefhljóð

From Wikipedia, the free encyclopedia

Remove ads

Nefhljóð er samhljóð myndað þegar gómfyllan lækkar svo loft flæðir út í gegnum nasirnar. Í íslensku eru 3 nefhljóð n, m og ng. Í íslensku er ennfremur að finna eins konar nefmælt -h sem finnst alla jafna milli nefhljóðs og harðs lokhljóðs í enda orða í framburði allra nema norðlendinga en þetta nefmælta -h er samkvæmt skilgreiningu ekki flokkað sem nefhljóð.

Myndunarháttur

Nefhljóð eru til í næstum öllum tungumálum [heimild vantar].

Remove ads

Skýring

Næstum öll nefhljóð eru lokuð nefhljóð, þ.e. þar sem loft flæðir út í gegnum nasirnar en ekki munninn því varirnar eða tungan koma í veg fyrir það. Hljóðið endurómar enn í munnholinu þrátt fyrir það. Stundum eru ólokuð nefhljóð nefmæld.

Flest nefhljóð eru rödduð en algengustu nefhljóðin þversum öll tungumál eru [n] og [m]. Órödduð nefhljóð eru til í sumum tungumálum, eins og búrmönsku, gvaraní og velsku. (Samanber lokhljóð, þar sem lokað er alveg fyrir loftinu, og önghljóð, þar sem loftið er hindrað með þröngum göngum. Bæði rödduð lokhljóð og önghljóð eru algengari en órödduð lokhljóð og önghljóð.)

Remove ads

Flokkun

Nánari upplýsingar Raddað, Óraddað ...
 Linguistics stub.svg  Þessi málfræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
Remove ads
Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads